Hafn Magnússon skrifaði:
Vinir Davíðs Oddssonar minntust hans á samfélagsmiðlum á mánudaginn. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, kvaddi hann með ljóði eftir Sigurð Nordal. Ekki verður annað séð að með vali á þessu kvæði sé Hannes á snyrtilegan hátt að vekja athygli á eftirkomendum Davíðs í forystunni.
Falla hinar öldnu eikur,-
ófullt skarð til tveggja handa,-
rótafastar, fagurkrýndar,
friðarmerki skógarlanda.
Úfnar af þjósti og úlfaþyti
eftir birkirenglur standa.