
Umræðan: Kolbrún Bergþórsdóttir skrifaði fína grein á dv.is. Greinin byrjar svona:
„Í Kastljósi RÚV í síðustu viku var dæmigert augnablik þar sem andstæðingur Evrópusambandsins afhjúpaði fátæklegan málflutning sinn.
Þar mættust Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins. Þar sagði Guðrún að ef þjóðin segði já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst væri það „óútfylltur tékki til Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur sem mun þá halda á samningsumboðinu og leiða okkur inn í Evrópusambandið. Það er það sem er verið að kjósa um.“

Þessar fullyrðingar Guðrúnar Hafsteinsdóttur eru auðvitað þvæla. Pistlahöfundur efast ekki um að máttur Þorgerðar Katrínar sé mikill en hún er ekki þess umkomin að taka sér einræðisvald og leiða þjóðina móðurlega inn í Evrópusambandið eða þvinga hana þangað inn. Það er þjóðin sem ræður.
Enn einu sinni talar einn af fulltrúum nei-hópsins niður til þjóðarinnar. Talsmenn nei-sins hafa gert sér að leik að tala eins og íslenskur almenningur sé svo bernskur og viljalaus að hann láti plata sig eins og ekkert sé. Talað er eins og rænulaus þjóð muni áður en hún viti af verða hluti af Evrópusambandinu án þess að hafa verið spurð álits. Allt verði það Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur að kenna. Já, mikill er máttur Þorgerðar Katrínar!“