- Advertisement -

Inga Sæland og Flokkur fólksins

Stjórnmál:

Árni Sigfússon, fyrrv. borgarstjóri og síðar bæjarstjori, skrifaði:

„Gefum okkur aðeins dýpri andardrátt og hugsum þá málin einnig dýpra.

Flokkur fólksins varð til vegna þess að of mörgum fannst þau vera útundan í samfelaginu, að á þau væri ekki hlustað, að óskir þeirra um mannsæmandi líf væru fótum troðnar. Þetta var alvarleg tilkynning til okkar!

Þú gætir haft áhuga á þessum

Reynt að gera litið
úr Flokki fólksins.

Inga Sæland hefur lagt ríka áherslu á að svara þessum hópi. Hún kynnir af stolti fleiri hjúkrunarrými fyrir aldraða, sterkari tekjugrunn þeirra sem höllustum fæti standa.

Við getum haft ólíkar skoðanir á réttum leiðum til þess en efumst ekki um heiðarlegan og fallegan vilja hennar hóps til að gera betur!

Nu er ráðist að þeim fyrir það að einn úr ráðherraliðinu reyndist alls ekki rétti maðurinn til að sinna menntamálum.

Þar er góðhjartaður maður …en … það ráðherraembætti hentaði honum alls ekki.

Á því var tekið. Hvers vegna þá að leita uppi veika bletti þegar félagar hans voru að reyna að segja honum það? Hans biði stríð.. ekki endilega úr hans eigin hópi heldur breiðum hópi víða að sem skynjaði og sá þetta með berum augum.

Ég er ósáttur við að þannig sé reynt að gera litið úr Flokki fólksins. Það kann að vera lítils virði að verja þennan hóp þegar hann mælist lágt í skoðanakönnunum .. en ég bara get ekki annað !

Ég er Sjálfstæðismaður af gamla skólanum. ,,Stétt með stétt“.

Eflum dugnað og kraft þeirra sem geta en stöndum með þeim sem höllum fæti standa!

Ég vil ekki trúa að okkur sé að fækka.. sem þannig hugsum.. en hér stend ég og get ekki annað.“

Árni Sigfússon birti greinina á eigin Facebooksíðu.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: