- Advertisement -

Miðflokkurinn í mínus

Stjórnmál:

Sigurjón Þórðarson skrifaði:

Það þurfti ekki að setja upp sterk gleraugu til þess að sjá að það glitti í Þórðargleði hjá stjórnarandstöðunni þegar það stefndi í ófrið á vinnumarkaði. Lítið fór síðan fyrir fögnuði á sömu bæjum þegar samningar náðust um að halda sátt. Vissulega voru undantekningar á því m.a. hjá þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins sem taldi tíðindin geta borið með sér betri tíð með blóm í haga.

Málflutningur stjórnarandstöðunnar hefur í heild sinni verið mjög mótsagnakenndur m.a. er lagst gegn nákvæmlega öllum tekjuöflunarleiðum ríkisins og mikluð neikvæð áhrif þeirra t.d. af km gjaldinu sem er rúmlega eins króna hækkun á gjaldi á hvern ekinn km og gott ef hækkun bankaskattsins átti ekki að setja fjármálakerfið á hliðina – Á sama tíma leggur stjórnarandstaðan fram margar ágætar tillögur um aukin útgjöld m.a. aukin réttindi vegna fæðingarorlofs, auknar vaxta- og barnabætur ofl. ofl. Undarlegast af öllu er að á sama tíma og þessar þversagnir eru lagðar á borðið þá eru þær settar fram sem raunhæfar lausnir, en allra lengst í þessu vitleysistali gengur Framsókn.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Útgerð smábáta
virðist einnig vera
sérstakt eitur í beinum
þingmanna Miðflokksins.

Miðflokkurinn hefur algera yfirburði yfir aðra flokka í stjórnarandstöðunni þegar komið er að niðurrifstali og lýsa yfir bölsýni á ábyrgar tillögur ríkisstjórnarinnar m.a. um leigubremsuna. Það skýtur skökku við að þingmenn flokksins reyna ítrekað að gera lítið úr umræðu um að auka verðmætasköpun með auknu frelsi til fiskveiða og endurskoðun fiskveiðiráðgjafarinnar. Útgerð smábáta virðist einnig vera sérstakt eitur í beinum þingmanna Miðflokksins sem reyna allt hvað þeir geta til að bregða fæti fyrir strandveiðar og nýliðun í sjávarútvegi. Furðulegust er andstaða þeirra við að leita leiða til þess að nýta þær aflaheimildir sem gefnar eru út t.d. í ufsa en um árabil hefur útgefinn kvóti ekki verið nýttur.

Hver er ávinningurinn af aðgerðum stjórnvalda

Nú hafa fulltrúar allra flokka stjórnarandstöðunnar lagt fram sameiginlega 15 ítarlegar spurningar þar sem farið er fram á óteljandi útreikninga með ýmsum sviðsmyndum um hve boðaðar aðgerðir stjórnvalda til að tryggja að samningar á vinnumarkaði héldust, muni kosta ríkissjóð.

Flestar eru spurningarnar ágætar og allt það en það vantar einhverra hluta vegna þá spurningu sem ætti að vera efst á blaði.

Hún er hvað þýðir það fyrir afkomu ríkissjóðs ef aðgerðirnar leiða til lægra vaxtastigs en skuldir ríkissjóðs eru 2.600 milljarða kr. og síðan hvað hefðu harðvítugar vinnudeilur kostað ríkissjóð.

Það blasir við að lækkun vaxta skilar sér hratt í betri afkomu um tugmilljarða króna fyrir hvert prósent sem vextir eru lækkaðir fyrir ríkissjóð og yrði mikill búhnykkur fyrir heimilin í landinu.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: