Stjórnmál:
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Meðal lögbundinna verkefna Seðlabanka Íslands er verðstöðugleiki og að hann starfi utan hins pólitíska sviðs. Sem sagt, hann á að vera sjálfstæður, ópólitískur og halda sig frá kjarabaráttu. Ekki móta niðurstöðu kjarasamninga með pólitískum yfirlýsingum eða aðgerðum. Bankinn á að sinna peningamálum, ekki vera ókjörinn þátttakandi á vinnumarkaði.
Undanfarin ár hefur hins vegar mátt greina sífellt meiri tilhneigingu í þá átt að forysta Seðlabankans stígi út fyrir sitt hlutverk. Nýlegt dæmi eru ummæli Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra um að leigubremsa, sem ríkisstjórnin setur fram í þeim tilgangi að hemja verðbólgu, sé „heimskuleg“ hugmynd. Þetta kemur frá embættismanni sem leiðir stofnun sem á að starfa af yfirvegun, hlutlægni og fagmennsku.
Þetta eru hrein
pólitísk inngrip.
En það eru ekki einungis ummælin um leigubremsuna sem vekja nú athygli.
Varaseðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson, lýsti því með berum orðum á dögunum að Seðlabankinn hefði átt þátt í að skapa þann efnahagslega slaka sem varð til þess að áhugi á að segja upp kjarasamningum var líkast til ekki fyrir hendi. Hann sagði raunar að markmiðið hefði meðal annars verið að tryggja að samningunum yrði ekki sagt upp.
Þetta eru óvenjuleg ummæli, sem ekki samrýmast lagalegu hlutverki bankans. Má færa sterk rök fyrir því að ummælin gangi gegn kröfunni um hlutlægni bankans og opinberra embættismanna.
Í reynd er hér verið að segja að Seðlabankinn hafi beitt vaxtavopninu til að veikja samningsstöðu launafólks. Vissulega hafa seðlabankar um allan heim lengi byggt á þeirri kenningu að draga þurfi úr eftirspurn þegar verðbólga verður of mikil. En það er allt annað að tala eins og hlutverk bankans sé að hafa áhrif á niðurstöðu kjaraviðræðna og stuðla að atvinnuleysi.
Þetta eru hrein pólitísk inngrip og er eins og bankinn sé genginn í lið með Samtökum atvinnulífsins.
Þegar embættismenn bankans fara að ræða markmið hans með þessum hætti er erfitt að komast hjá þeirri niðurstöðu að þeir líti á sig sem virka þátttakendur í vinnumarkaðsmálum. Það er pólitískt hlutverk sem Seðlabankinn á ekkert með að vasast í.
En hver á að veita Seðlabankanum sjálfum aðhald?
Það kemur í hlut forsætisráðherra og Alþingis. Hvorugur aðili getur setið lengur hjá. Trúverðugleiki hagstjórnar landsins er í húfi.
Kristrún þarf að sópa
stjórnmálamönnunum
út úr Svörtuloftum.
Það er því ekki úr vegi að rifja upp að Seðlabankinn átti stóran þátt í þeirri eignaverðsbólu sem myndaðist á fasteignamarkaði þegar vextir voru keyrðir niður í sögulegt lágmark á árum faraldursins. Þúsundir heimila voru hvattar til skuldsetningar á þeirri forsendu að lágvaxtatímabilið væri komið til með að vera og að verðtryggingin væri dauð. Þegar verðbólgan tók síðan við sér var vaxtahækkunum beitt af fullum þunga og heimilin látin greiða reikninginn.
Í stað fagmennsku virðist hins vegar gæta vaxandi hroka í málflutningi bankans. Hann er orðinn beinn þátttakandi gegn kjarabaráttu launafólks.
Þess vegna stendur Kristrún Frostadóttir frammi fyrir mikilvægu verkefni. Ekki aðeins að ná tökum á verðbólgunni, heldur einnig þarf hún að sópa stjórnmálamönnunum út úr Svörtuloftum. Sjálfstæði Seðlabankans er í húfi. En sjálfstæði er ekki það sama og ábyrgðarleysi. Það veitir ekki leyfi til dónaskapar gagnvart kjörnum stjórnvöldum, afskipta af kjarabaráttu eða pólitískrar þátttöku undir yfirskini tæknilegrar hagstjórnar.
Spurningin er því ekki hvort Seðlabankinn eigi að vera sjálfstæður. Spurningin er hvort hann eigi að vera stjórnmálamaður?
Svarið er nei! Framganga forystumanna bankans vekur upp alvarlegar efasemdir um dómgreind þeirra og hæfni til að gæta þess hlutleysis sem embættunum fylgir.