- Advertisement -

Kristrún: Held ég hafi ekki lært eins mikið af neinum og af Ingu Sæland

Stjórnmál:

Kratinn, vefrit Samfylkingarinnar, er með viðtal við Kristrúnu Frostadóttur. Þar er meðal annars vikið nokkrum orðum að Flokki fólksins, og einkum að Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins:

„Ég held reyndar að Flokkur fólksins sé eitt það sem besta sem hefur komið fyrir íslensk stjórnmál. Ég held að þau séu oft mjög misskilin sem flokkur,“ sagði Kristrún og bætti svo við að það væri alltaf verið að tala um það, allavega frá því að hún myndi eftir pólitík, að það skipti máli að við værum með fólk í pólitík og fólk að stjórna landinu sem skildi veruleika fólks og væri jarðtengt og ekki bara úr efstu lögum samfélagsins.

„Flokkur fólksins hefur verið byggður upp af einstaklingum sem hafa gengið í gegnum allskonar hluti, hafa þurft að mæta kerfinu. Þau stundum koma fram með aðeins öðruvísi hætti en til dæmis ég – en ég er bara alin upp við allt öðruvísi aðstæður en til dæmis Inga. Ég held það hafi verið mín mesta blessun í lífinu – nú hef ég unnið mjög víða og held að ég hafi ekki lært eins mikið af neinum og Ingu Sæland. Ég fyllist bara auðmýktar á hverjum einasta degi sem ég vinn með henni og við ættum að vera heppin að hafa konu eins og hana í pólitík,“ sagði Kristrún.

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Flokkur fólksins er stofnaður að hluta til af fólki sem hafði kosið Samfylkinguna og var ósátt við Samfylkinguna eftir hrun, eftir hrunstjórnina og vildi gera breytingar til baka í almannatryggingamálum og fannst Samfylkingin hafa yfirgefið sinn kjarna,“ sagði Kristrún.

Hún lét þess síðan getið að hún væri að segja þetta sem áhorfandi – það hefðu verið erfiðir tímar eftir hrun og fólk ráðist í ákvarðanir sem voru erfiðar en skiljanlegar á þeim tíma en þurfti svo að vinda ofan af aftur. „Flokkur fólksins hefur hreyft við umræðunni þar,“ sagði Kristrún.

Hér er hægt að lesa viðtalið.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: