Samfélag:
Sigurjón Magnús Egilsson skrifar:
Ljótt er að fylgjast með átökunum innan Alþýðusambands Íslands. Launafólk hefur í 110 ár byggt um sambandið. Oft hafa verið átök meðal forystufólks. ASÍ hefur samt lifað þau öll af. Nú er barist af mikilli hörku. Þó okkur sem stöndum utan við deilurnar vitum ekki, eða föttum ekki, um hvað er raunverulega barist.
Það eru alvarlegar hótanir að segjast vilja kljúfa ASÍ. Ekki heyrist betur en svo að í átökunum sé fólk sem telji sig stærra en ASÍ. Því miður.
Vonandi ber allt þetta fólk meiri virðingu fyrir ASÍ en svo að þau telji sig svo stór að það ætli að standa við hótanir um að kljúfa ASÍ svo eftir verði minna og veikara samband. Öllum til tjóns. Persónulegur metnaður er oft erfiður við að eiga. Launafólks vegna er vonandi að Alþýðusambandið lifi þetta af.