
Stjórnmál:
Arnar Þór Jónsson lögmaður skrifaði:
Á yngri árum í Fossvoginum var Jón Gnarr í hljómsveitinni NESKAMES, sem er skammstöfun og merkir „Nú er svo komið að margir eru sárir“. Eftir einlægt og innihaldsríkt viðtal Stefáns Einars við Jón Gnarr í Spursmálum er gamla, góða hljómsveitarnafnið fullkomin lýsing á líðan margra Viðreisnarmanna.

Til hamingju Íslendingar með að hafa heimt Jón Gnarr úr helju.
Jón hefur talað um það nýverið að hann sé farinn að lesa Frelsið eftir J.S.Mill og ástæða er til að gleðjast yfir því að þessi mikli listamaður okkar Íslendinga sé kominn aftur inn á frelsisbrautina þar sem hann blómstraði sem pönkari, andófsmaður og flugbeittur samfélagsrýnir. Þegar menn eru lagðir af stað í leit að ljósi, frelsi og sannleika eins og Jón, þá verður ekki aftur snúið. Slíkir menn geta ekki með nokkru móti unnið í anda valdboðs, eins og er raunar rauði þráðurinn í starfi Viðreisnar, sem þykist aðhyllast frjálslyndi en styður stjórnlyndi með ráðum og dáð, sbr. þá þráhyggju formanns flokksins að vilja framselja vald Íslendinga úr landi til ólýðræðislegs, miðstýrðs erlends skrifstofuveldis.
Á persónulegum nótum óska ég Jóni Gnarr til hamingju með að hafa aftur fundið sína eigin rödd og að hann hafi hugrekki til að tjá sig á sinn einlæga hátt. Jón er bestur sem Jón Gnarr sjálfur, ekki sem litlaus liðsmaður í teymi sem aðrir stjórna. Það er kostur – ekki galli – að menn geti hugsað sjálfstætt og þori að fara sínar eigin leiðir. Við þurfum fleiri þannig menn, en ekki færri – og það eru engin sérstök meðmæli með nokkrum manni að segja um hann að hann „rekist vel í hóp“. Við erum menn en ekki sauðfé. Sjálfstætt þenkjandi frelsissinnar snúast gegn hvers kyns tilburðum þeirra sem reyna að smala okkur í hólf og stimpla út frá hópnum sem þar er fyrir.
Til hamingju, Jón Gnarr, með þína ákvörðun.
Til hamingju Íslendingar með að hafa heimt Jón Gnarr úr helju.