- Advertisement -

Freki karlinn snýr aftur

Stjórnmál:

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Íslensk stjórnmál hafa lengi beðið eftir endurkomu Freka karlsins. Margir töldu að persónan hefði liðið undir lok en nú virðist hún hafa gengið aftur. Og merkilegast af öllu er að persónan virðist hafa tekið sér bólfestu í höfundi sínum.

Þegar Jón Gnarr skapaði Freka karlinn var hann að gera grín að manninum sem vissi alltaf best. Manninum sem taldi eigin skoðanir merkilegri en skoðanir hópsins. Manninum sem krafðist þess að aðrir breyttu sér en sá sjaldan ástæðu til að breyta sjálfum sér. Freki karlinn telur sig eiga rýmið. Hann telur sínar skoðanir vera sannleikann og sína forgangsröðun eiga að ráða för.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Jón Gnarr.

Nú situr þjóðin eftir og veltir fyrir sér hvort Jón sé hættur að leika Freka karlinn og sé einfaldlega þessi freki karl.

Þingflokkur Viðreisnar, og raunar þjóðin öll, virðist að minnsta kosti hafa fengið að kynnast honum síðustu daga. Jón hefur sagt sig úr þingflokknum, látið þung orð falla um samskiptamenningu innan flokksins og gefið til kynna að framtíð hans í Viðreisn sé háð því hvort aðrir taki sig á.

Freki karlinn er nefnilega sannfærður um að ef enginn annar sér vandann þá sé það vegna þess að enginn annar skilur hann. Honum dettur sjaldan í hug að vandinn gæti verið hjá honum sjálfum.

Þegar heill þingflokkur stendur öðru megin og einn maður hinum megin eru í raun aðeins tvær mögulegar skýringar. Annaðhvort er maðurinn sá eini sem sér sannleikann. Eða hann er orðinn svo upptekinn af eigin sannfæringu að hann heyrir ekki lengur í neinum öðrum.

Jón Gnarr virðist telja fyrri skýringuna líklegri. Freki karlinn myndi gera það líka.

Allir hinir hafa bara
rangt fyrir sér.

Kannski er þetta bara misskilningur. Kannski eru áhyggjur Jóns fyllilega réttmætar. En það er erfitt að komast hjá þeirri kaldhæðni að maðurinn sem skapaði eina eftirminnilegustu ádeilu síðari ára á sjálfumglöðu valdafólki skuli nú sæta ásökunum um að vera farinn að haga sér eins og persónan sem hann bjó sjálfur til.

Stundum er lífið nefnilega betri grínisti en grínistarnir sjálfir. Og stundum þarf Freki karlinn ekki einu sinni nýjan leikara. Höfundurinn mætir bara sjálfur á sviðið, úthlutar sér hlutverki siðapostulans og skammar samherjana fyrir skort á mannasiðum og góðri samvinnu. Dylgjurnar fljúga, ásakanirnar falla og sönnunarbyrðin virðist ætíð lenda á öðrum.

Freki karlinn veit nefnilega að hann hefur rétt fyrir sér. Allir hinir hafa bara rangt fyrir sér.

Freki karlinn fullyrti á dögunum að hann væri þungavigtamaður. Smápeðin í þingflokki Viðreisnar þurfi því að hlusta á hann með andakt. Fylkja sér að baki hans eigin forgangsröðun. Og helst af öllu að bugta sig og beygja í eilífri undirgefni gagnvart sannleikskornum sem drjúpa af vörum þessa djúpvitra og freka karls. Já, og fórna eigin sannfæringu því sannfæring Freka karlsins er sú eina rétta.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: