Sjávarútvegur:
Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifaði:
Það er eins og við manninn mælt að þegar á að breyta einhverju í blessaða fiskveiðistjórnunarkerfinu þá spretta upp sömu „fræðimennirnir“ og andmæla. Einn þeirra er Vífill Karlsson sem starfar á Bifröst en RÚV gerði einhverra hluta vegna strax grein fyrir nýrri „rannsókn“ hans um 5,3% hluta veiðiheimilda sem ætlað er til byggðaaðgerða. Vífill gerði umrædda rannsókn ásamt Sveini Agnarssyni sem er einn af höfundum núverandi aflareglu í þorski en hann taldi það hagkvæmast á sínum tíma (árið 2007) að hætta beinum þorskveiðum í eitt ár.
Staðreyndin er sú…
Árið 2025 vann Vífill svarta skýrslu um áhrif breyttra útreikninga á veiðigjaldi á byggðir landsins. Nú er hann mættur með nýja skýrslu þar sem niðurstaða greiningarinnar er m.a. að strandveiðar komi lakast út sem byggðaaðgerð í 5,3% pottinum. Best segja þeir félagarnir að úthluta kvótum í gegnum Byggðastofnun og þar á eftir telja þeir að best hafi tekist til við úthlutun í gegnum skel- og rækjubætur.
Ég er ekki einn um að hafa gagnrýnt úthlutun Byggðastofnunar og vísa ég þar í gagnrýni Langanesbyggðar ofl, en það segir allt sem segja þarf um „rannsókn“ þeirra félaganna að þeir raða rækju- og skelbótunum í annað sætið sem heppilegri byggðaaðgerð.
Staðreyndin er sú að stærsti hluti rækju- og skelbóta er nú hjá einni útgerð sem komin er upp fyrir kvótaþakið.
Eftir að hafar rennt í gegnum rannsóknina þá virðist vera sem hún byggist alfarið á fylgni á milli mismunandi úthlutun á byggðakvóta og ýmissa þátta á borð við; útsvarstekjur, íbúaþróun, fjölda seldra íbúða ofl.
Það læra það allir í fyrsta tíma í tölfræði að þó það sé fylgni á milli ákveðinna þátta þá segir það ekki til orsakasamhengi en það virðist þeim Vífli og Sveini gleymt.
Í skýrslunni segir:
„Marktæk jákvæð fylgni var á milli aflaheimilda í skeldýrabótum og kvótakaupum og fjölda seldra íbúða en neikvæð gagnvart útsvarstekjum (væg), atvinnutekjum kvenna (væg) og misskiptingu. Þessi áhrif eru jákvæð nema í tilfelli útsvars- og atvinnutekna þar sem þær lækka.“
…að reyna nýjar leiðir…
Eina byggðalagið þar sem skel- og rækjubætur eru vistaðar í einhverju magni er í Stykkishólmi á skip Brims. Það þarf ekki mikinn speking eða flókna aðhvarfsútreikninga til þess að sjá það í hendi sér að íbúðarsala og útsvarstekjur hafa lítið sem ekkert að gera með umræddar rækju- og skelbætur í Stykkishólmi. Skýringanna er að leita annað m.a. vegna sölu á orlofshúsum og ferðaþjónustu.
Það er tímabært að reyna nýjar leiðir við stjórn veiða og efla byggð t.d. að opna svæði til í kringum viðkomandi byggðir með vistvænum veiðarfærum t.d. við Bakkafjörð og Grímsey.