- Advertisement -

„Annars verða allir drepnir“

Stjórnmál:

Hér á eftir fer góð grein Kolbrúnar Bergþórsdóttur, sem hún skrifaði fyrir dv.is:

Skapandi einstaklingur með frumlega hugsun rekst iðulega illa í hópi. Eðli hans er þannig að hann þarf svigrúm og pláss og það á illa við hann að sitja úti í horni og kinka kolli yfir hugmyndum annarra. Hann hefur svo ótal mikið af eigin hugmyndum. Þannig maður er Jón Gnarr.

Þegar Jón Gnarr settist á þing veltu margir áhugamenn um stjórnmál því fyrir sér hvernig maður með hans sterku listrænu taug myndi þola að sitja ótal deyfðarlega þingfundi og ekki síður hvernig úthaldið yrði á langdregnum þingflokksfundum. Nú hefur komið í ljós það sem marga grunaði. Slík seta á alls ekki við Jón Gnarr.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ekki er líklegt að
Jón Gnarr verði
að hornkerlingu…

Forysta Viðreisnar hefði átt að gera sér grein fyrir því í byrjun að Jón Gnarr yrði ekki gerður að aukaleikara, ekki frekar en Dagur B. Eggertsson sem Samfylkingin reyndi að gera að einum slíkum. Dagur lætur ekki kveða sig auðveldlega í kútinn. Sem þaulreyndur og klókur stjórnmálamaður brást hann við með því að finna sér pláss og fylla smám saman svo vel upp í það að ekki er hægt að flokka hann sem statista, þótt löngun einhverra hafi staðið til að það yrðu einmitt örlög hans. Það má hrósa Degi fyrir ýmislegt, eins og til dæmis það að hafa verið einn örfárra þingmanna Samfylkingarinnar sem var með fullri meðvitund í kosningabaráttu já-sinna.

Ekki er líklegt að Jón Gnarr verði að hornkerlingu þótt hann hafi sagt sig úr þingflokki Viðreisnar. Hann losnar við að sitja andlausa þingflokksfundi og verður örugglega en sprækari fyrir vikið. Hann getur nýtt þann tíma sem sparast í öfluga hugmyndavinnu, sem vonandi gagnast honum, flokki hans og kjósendum.

Það er öllum stjórnmálaflokkum hollt að hafa innanborðs einstaklinga sem eru sjálfstæðir í hugsun og það svo mjög að ómögulegt er að breyta þeim í flokkshest sem kinkar stöðugt samþykkjandi kolli yfir ákvörðunum forystunnar. Fyrir allmörgum árum sagði stjórnmálamaður pistlahöfundi að þingflokksfundir flokks hans væru nánast óþolandi því við borðið sætu tveir einstaklingar sem hæfu aldrei mál sitt án þess að skjalla formanninn í löngu máli, fullu af orðskrúð. Það fór hrollur um pistlahöfund við þá lýsingu. Formaður flokks á ekki að þurfa á smjaðri já-fólks að halda. Formaður þarf fólk sem segir honum sannleikann og leyfir sér að vera ósammála honum um leið og það virðir hann.

Að gefnu tilefni skal minnt á að góður formaður á skilið stuðning félaga sinna þegar andstæðingar veitast hatrammlega að honum. Formaður Viðreisnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hefur fengið yfir sig endalausa holskeflu af svívirðingum og alls kyns viðbjóði úr hinum og þessum áttum og einnig fengið alvarlegar hótanir. Helsta sök hennar er að vera Evrópusinnuð og svo bætti hún víst gráu ofan á svart þegar hún las stríðsglæpamanninum Netanjahú pistilinn á þingi Sameinuðu þjóðanna. Það æsti enn frekar lýðinn sem hafði áður básúnað að það ætti að ákæra hana fyrir landráð vegna utanríkisstefnu hennar.

Jón Gnarr á að
virða þau viðbrögð.

Kjósendur Viðreisnar meta formann sinn. Nýleg skoðanakönnun sem Viðskiptablaðið lét gera um ánægju kjósenda með formenn stjórnmálaflokkanna sýndi Þorgerði í efsta sæti en tæplega 96 prósent kjósenda flokksins eru ánægðir með störf hennar. Þorgerður Katrín á ekki annað skilið en að þingmenn Viðreisnar séu þar á meðal.

Forysta Viðreisnar hefur brugðist skynsamlega við úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokknum og segist taka gagnrýni hans alvarlega. Jón Gnarr á að virða þau viðbrögð. Forystan veit að það er akkur í því fyrir flokkinn að hafa Jón Gnarr innanborðs. Þingmaðurinn á svo að vita að hann græðir lítið á því að fara í endalaus viðtöl þar sem hann ber sig illa og kvartar undan flokksforystunni. Hann hefur nú þegar komið sjónarmiðum sínum rækilega til skila – og rúmlega það.

Jón Gnarr gerði skriflegt samkomulag við Viðreisn um samvinnu. Manni finnst reyndar að heiðursmannasamkomulag, innsiglað með handabandi, hefði átt að nægja. Sumum finnst þó alltaf betra að hafa hluti á pappír og það er þá bara þannig.

Um samkomulag Jóns Gnarr og Viðreisnar má segja það sama og Jón Prímus segir í Kristnihaldi undir Jökli: „Samkomulag er það sem skiptir máli. Annars verða allir drepnir.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: