- Advertisement -

Skrifast allt á forseta Alþingis

Varaforseti Alþingis gagnrýninn á Steingrím J. Sigfússon forseta Alþingis. „Ef ég hefði verið forseti í dag hefði ég frestað þingfundi.“

Jón Þór Ólafsson, Pírati og einn af varaforsetum Alþingis, var óspar á gagnrýni á Steingrím J. Sigfússon, forseta Alþingis, í hörðum umræðum á þingi fyrir helgi.

„Ef ég hefði verið forseti í dag hefði ég frestað þingfundi, talað við þingflokksformennina sem forseti Alþingis og reynt að finna einhverja leið út úr þessu. Það er náttúrlega ekki það sem menn hafa áhuga á,“ sagði Jón Þór.

„Tvö mál koma inn núna sem eru alveg á lokametrunum og svo þriðja málið sem mikil andstaða er við. Þá veit náttúrlega forseti alveg hvað gerist. Auðvitað getur minni hlutinn ekki gert annað, fyrst hann hefur ekki dagskrárvaldið, en segja: Þetta gengur ekki, þetta er andstætt því sem talað var um fyrir tveim vikum síðan. Það er ekkert annað sem við getum gert.“

Getum ekki sætt okkur við svona fundarstjórn

Jón Þór hélt áfram: „Þá hefjast þingstörfin eðlilega, vegna þess að við getum ekki sætt okkur við svona fundarstjórn og svona dagskrá og algjört samráðsleysi. Á endanum getur forseti sagst vera búinn að taka afstöðu og sagt: Þið voruð bara að tala og tefja o.s.frv. og þar af leiðandi er ekkert hægt að klára þessi mál. Svona verður þetta að vera. Svo verða menn þreyttir og svona.“

Eftir leikbók Sjálfstæðisflokksins

Jón Þór lauk ræðu sinni svona:

„Þetta er ekki tilviljun. Þetta er spilað nákvæmlega eftir þeirri leikbók Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið eftir þegar hann hefur sinnt embætti forseta Alþingis, og fleiri flokkar líka. Þetta er nákvæmlega eftir gömlu handbókinni um hvernig þessi störf eru. Forsetinn er með dagskrárvaldið. Forsetinn er með valdið til þess að eiga samráð við þingflokksformenn, til þess að hliðra til hérna, eiga samráð. Þetta skrifast allt saman á forseta þingsins.“

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: