- Advertisement -

Segir Rúv ekki vera almannaútvarp

Hin op­in­beru fé­lög haga sér oft eins og ríki í rík­inu.

„Ríkið þarf ekki að reka fjöl­miðil, það þarf ekki að reka póstþjón­ustu, flug­stöð þarf ekki að vera í rík­is­eigu og ríkið þarf ekki að reka fjár­mála­fyr­ir­tæki. Ríkið ætti frek­ar að ein­beita sér að því að for­gangsraða í þá grunnþjón­ustu sem við höf­um komið okk­ur sam­an um að ríkið sinni. Ekk­ert af þessu hef­ur þó með al­mannaþjón­ustu að gera.“

Ritari Sjálfstæðisflokksins, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifaði grein sem er í Mogganum í dag. Hér birtast valdir kaflar úr greininni.

„Hin op­in­beru fé­lög haga sér oft eins og ríki í rík­inu og kæra sig lítið um það að stjórn­mála­menn hafi skoðanir á því hvernig þau haga sér. Staðreynd­in er þó sú að stjórn­mála­menn eru kjörn­ir full­trú­ar al­menn­ings, hins raun­veru­lega eig­anda fé­lag­anna. Rík­is­fyr­ir­tæk­in eiga sig ekki sjálf og eru þar síður í eigu stjórn­enda þeirra.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ekk­ert af þessu hef­ur þó með al­mannaþjón­ustu að gera.

„Það vek­ur oft at­hygli – og furðu – hversu áköf rík­is­fyr­ir­tæk­in eru í sam­keppni við einkaaðila og á það sér­stak­lega við hin op­in­beru hluta­fé­lög (ohf.) Isavia rek­ur bíla­stæði við flug­stöð og reyn­ir að hrekja í burt sam­keppni, Ísland­s­póst­ur und­ir­býður sendi­bíla­stöðvar til að keyra út vör­ur fyr­ir IKEA og RÚV þurrk­ar upp aug­lýs­inga­markaðinn fyr­ir stóra viðburði. Þessi op­in­beru hluta­fé­lög gefa ekk­ert eft­ir og ganga jafn­vel harðar fram í sam­keppn­inni en nokk­urt einka­fyr­ir­tæki myndi gera. Ekk­ert af þessu hef­ur þó með al­mannaþjón­ustu að gera. Það er ekki nauðsyn­legt fyr­ir ríkið að selja nær­föt og sæl­gæti í flug­stöðinni eða sinna bíla­stæðum við hana, svo tek­in séu dæmi.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: