- Advertisement -

Viðvarandi hallarekstur er á heimilum lágtekjufólks – vilja krónutöluhkkanir

Sólveig Anna:

Félagsfólk Eflingar vill búa í samfélagi jöfnuðar og réttlætis. Það vill berjast gegn misskiptingu og stéttskiptingu. Það krefst sanngirni og virðingar.

Í morgun sendi ég fyrir hönd samninganefndar Eflingar kröfugerð félagsins til Samtaka atvinnulífsins. Kröfugerðina má skoða í fyrstu athugasemd við þessa færslu.

Algjör einhugur var hjá samninganefnd Eflingar um kröfugerðina og var hún samþykkt einróma á fundi okkar í gær, eftir mikla vinnu.

Í kröfugerðinni förum við fram á hækkun allra mánaðarlauna um samtals 167.000 krónur yfir þriggja ára samningstíma. Við setjum fram kröfu um sérstakra framfærsluuppbót. Við krefjumst krónutöluhækkunnar að fyrirmynd Lífskjarasamningsins.

Afkoma fyrirtækja og hagvöxtur eru í hæstu hæðum.

Afkoma fyrirtækja og hagvöxtur eru í hæstu hæðum. Með hækkunum kröfugerðar samninganefndar Eflingar er hlutdeild félagsfólks í hagvextinum tryggð. Ef að við fórnum kaupmætti okkar þá rennur hagvöxturinn til eigenda fyrirtækjanna, en ekki þeirra sem með vinnu sinni skapa hann. Vinnandi fólk og fulltrúar þeirra geta aldrei samþykkt slíka nálgun í kjarasamningum. Fyrirtækjaeigendur njóta arðs af sínum eigun en launatekjur eru í hættu. Eflingar-félagar munu ekki umbera aðför auðmagnseigenda að lífsskilyrðum sínum og fjölskyldna sinna í vetur.

Hluti þeirra hækkana sem við förum fram á snýr að því að leiðrétta það fráleita ástand að laun verka og láglaunafólks dugi ekki til framfærslu samkvæmt opinberum viðmiðum. Staðreyndin er sú að viðvarandi hallarekstur er á heimilum lágtekjufólks. Fullvinnandi fólk sem að jafnvel bætir við sig aukavinnu kemur samt út í mínus í hverjum mánuði. Það er til háborinnar skammar í einu ríkasta þjóðfélagi í heimi.

Við í samninganefnd Eflingar höfum lagt mikla vinnu í undirbúning kröfugerðarinnar. Þess ber einnig að geta að yfir 4500 Eflingarfélagar eiga þátt í mótun hennar með þátttöku sinni í kjara- og viðhorfskönnun félagsins sem framkvæmd var á 10 tungumálum.

Greiðsla mannsæmandi launa er ekki hættuleg samfélagi okkar.

Verkefni okkar í samninganefnd Eflingar er skýrt. Við ætlum að standa vörð um hagsmuni Eflingar-félaga og halda áfram á þeirri braut að ná fram kjarabótum fyrir félagsfólk. Þau sem skapa verðmætin og halda uppi grunnkerfunum eiga heimtingu á hlutdeild í hagvexti og auð samfélagsins.

Greiðsla mannsæmandi launa er ekki hættuleg samfélagi okkar. Þvert á móti er það einfaldlega skylda eigenda fyrirtækjanna að greiða vinnuaflinu mannsæmandi laun fyrir unna vinnu.

Félagsfólk Eflingar vill búa í samfélagi jöfnuðar og réttlætis. Það vill berjast gegn misskiptingu og stéttskiptingu. Það krefst sanngirni og virðingar. Það er tilbúið til að standa saman til að knýja á um betri kjör. Og af þessum ástæðum veit ég að Eflingar-fólk mun ná raunverulegum árangri í vetur.

Sjáumst í baráttunni.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: