- Advertisement -

Fordæma verkbannið og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar

UJ fordæmir verkbann SA og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar

Ungt jafnaðarfólk – UJ fordæmir ákvörðun aðildarfélaga Samtaka atvinnulífsins (SA) um að setja verkbann á félagsfólk Eflingar.

Fordæma verkbannið og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar

„Verkbannið er fordæmalaus aðgerð sem bitnar harkalega á lágtekjufólki og þúsundum heimila. SA ógnar með þessari ákvörðun öryggi og velferð fólks. Ætla má að tilgangurinn með verkbanni SA sé í raun sá að að knýja fram lögbann á verkföll Eflingar. Það er ljótur pólitískur leikur en hætt er við því að hin aðgerðalausa ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur gangi erinda SA í þeim efnum og setji með því hættulegt fordæmi,“ segir í bókun félags Ungra jafnaðarmanna.

„Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur staðið fyrir óábyrgri hagstjórn sem fólkið í landinu þarf að líða fyrir. Verðbólga mælist nú 9,9 %, við sjáum hæstu seðlabankavexti í 13 ár, kaupmáttur fer rýrnandi og greiðslubyrði af fasteignalánum fer snarhækkandi. Fólk er fast á stjórnlausum leigumarkaði og ungt fólk kemst ekki úr foreldrahúsum. Ábyrgð ríkisstjórnarinnar á þessari stöðu er mikil og svo virðist sem hún hafi ekkert plan, hvorki til að sporna gegn verðbólgu né til að verja tekjulægstu hópa samfélagsins gegn henni. Það er ekki nema von að launafólk krefjist réttlætis í gegnum launaliðinn í þessu ástandi.

Ungt jafnaðarfólk fordæmir aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar og skorar á hana að snúa við blaðinu og grípa til aðgerða í þágu íslensks almennings.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: