- Advertisement -

Sláturhúsið að Háaleitisbraut 1

Borgarfulltrúarnir; Hildur Björnsdóttir, Ragnheiður Alda María Vilhjálmsdóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Björn Gíslason Marta Guðjónsdóttir og Kjartan Magnússon.

Stjórnmál: Uppstillingarnefnd Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík skilar af sér innan skamms. Aðeins eitt er víst, Hildur Björnsdóttir verður í 1. sæti, leiðtogi framboðsins. Annað er óvíst. Meira að segja er óljóst með afdrif Ragnheiðar Öldu Maríu Vilhjálmsdóttur, sem var í 2. sæti síðast.

Talið er að aðeins einn af núverandi borgarfulltrúum lifi niðurskurðinn af. Hvort sem verður mun verða ósætti með skipan listans. Annað er ómögulegt. Flokkurinn hefur fengið ágætis mælingar í skoðanakönnunum að undanförnu. Þó hann sé enn mjög fjarri því sem var fyrir löngu.

Bessí Jóhannsdóttir er formaður kjörnefndarinnar. Núverandi borgarstjórnarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins , utan Heildar og Ragnheiðar Öldu, eru Björn Gíslason, Friðjón R. Friðjónsson, Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir. Öll með mikla reynslu af störfum í borgarstjórn.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ef rétt reynist mun aðeins eitt þeirra lifa af komandi breytingar á framboðslistanum.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: