- Advertisement -

Talar fjármálaráðherra gegn betri vitund

Árið 2008 voru ríkisstarfsmenn 11,4% af íslenskum vinnumarkaði en aðeins um 10,2% árið 2025.

Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB.

Kjaramál: Sonja Þorbergsdóttir, formaður BSRB, skrifaði:

„Með vísan til viðtals við fjármálaráðherra í Kastljósi þá vil ég árétta að það sem grefur mest undan trausti er skortur á samráði og brot á þeim leikreglum sem gilda á vinnumarkaði – með einhliða áformum ríkisstjórnarinnar um skerðingu réttinda eins og áminningarskyldu (sem er uppsagnarvernd) og atvinnuleysistrygginga. Ekki síður þegar því er haldið fram að skerðing réttinda eigi að fela í sér umbætur eða sé mannauðsmál. Vegna málflutnings fjármálaráðherra um fjölgun ríkisstarfsmanna vakna spurningar um hvort hann sé að tala gegn betri vitund.

Síðast þegar ég fundaði með fjármálaráðherra fyrir um tveimur vikum ræddi ég sérstaklega við hann fullyrðingar sérhagsmunasamtaka um meinta fjölgun ríkisstarfsmanna sem stenst ekki skoðun. Við höfum óttast það í svolítinn tíma að ríkisstjórnin sé að byggja ákvarðanir sínar á mjög einfaldaðri mynd á málum – sem stundum er kallað single story – og jafnvel skort á gögnum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Í minnisblaði BSRB til fjármálaráðherra kom eftirfarandi fram:

Fjölgun ríkisstarfsmanna hefur verið hlutfallslega minni en fjölgun fólks á íslenskum vinnumarkaði. Árið 2008 voru ríkisstarfsmenn 11,4% af íslenskum vinnumarkaði en aðeins um 10,2% árið 2025. Á þessu tímabili hefur samfélagið breyst mikið með fjölgun ferðamanna úr um 500.000 árlega í 2,3 milljónir, innflytjendum hefur fjölgað um 170% og 65 ára og eldri um 70%. Um 50% heilbrigðisútgjalda eru vegna síðastnefnda hópsins. Þessar breytingar kalla á mun meiri og flóknari opinbera þjónustu.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: