
Sigurjón Magnús Egilsson skrifar:
Á vef stjórnarráðsins kemur fram að fjármálaráð er umboðslaust. Skipað var í fjármálráð árið 2022 og til og með ársins 2025.
Eins og við vitum flest er næu árið 2026. Fjármálaráð er því umboðslaust. Svo hold kjæft og vær smuk.
Þau best settu stukku upp á nef sér, og eru þar flest enn, vegna ákvörðunar um að hætta að skilja aldrað fólk og veikt út í kuldanum. Búið er að ákveða að munur milli ellilauna og lægstu tekna í mannaheimum aukist ekki enn frekar. Þetta eiga þau best settu erfitt með að þola.
„Fjármálaráð lætur hæst allra. Ráðið telur að sjálfvirk vísitölutenging almannatrygginga sem lögfest var á Alþingi skömmu fyrir páskaleyfi þingsins vera áhættusama stefnumótun sem geti haft víðtækar og langvarandi neikvæðar afleiðingar fyrir sjálfbærni og festu opinberra fjármála. Vísitölutengingin feli í sér í sér mikla hættu á að misræmi myndist milli útgjalda og tekjuöflunargetu hins opinbera með tilheyrandi áhrifum á verðstöðugleika, vinnumarkað og skuldastöðu ríkissjóðs.“
Það er aldeilis vá framundan. Allt að fara fjandans til. Eru ekki fleiri spil í stokknum en þetta. Hvað um að setja á eignaskatta, aðstöðugjöld og fleira og fleira sem létt hefur verið af allra, allra ríkasta fólkinu og fyrirtækjum.
Hvaða fyrirbæri er svo þetta fjármálaráð og hvaða fólk situr þar. Á vef stjórnarráðsins kemur fram að fjármálaráð er umboðslaust. Skipað var í fjármálráð árið 2022 og til og með ársins 2025. Eins og við vitum flest er næu árið 2026. Fjármálaráð er því umboðslaust. Svo hold kjæft og vær smuk.
Í útrunnu fjármálaráði sátu; Gunnar Haraldsson, formaður, tilnefndur af forsætisráðherra, Arna Olafsson, tilnefnd af Alþingi og Þórunn Helgadóttir, tilnefnd af Alþingi. Til vara var Elísabet Kemp Stefánsdóttir, tilnefnd af Alþingi.
Viðbrögð best setta fólksins vegna löngu tímabærar leiðréttingar verst setta fólksins, eru því til ævarndi skammar.