- Advertisement -

Hverfandi ríkistjórn Kristrúnar Frostadóttur!

Hvað er Samfylkingin og Viðreisn að gera í milliverðlagningu/undirverlagningu á sjávarútvegsauðlindinni sem er ekkert annað en auðlindarrán og undanskot frá því að greiða rétt til samfélagsins? Þau eru að gera ekki neitt!

Vigfús Ásbjörnsson.

Umræðan: Vigfús Ásbjörnsson skrifaði:

„Ríkistjórn Kristrúnar Frostadóttur var bara vinsæl á fyrstu mánuðum hennar þegar almenningur skynjaði að ríkistjórnin væri að gera eitthvað sem skipti raunverulega máli fyrir íslenskt samfélag og hag almenning. Orðið „VALKYRJUR“ var mikið notað hjá þjóðinni með stórum stöfum en er hverfandi í dag og orðið afar sjaldgæft að heyra það nefnt eða sjá það skrifað og það er alveg eðlilegt þegar tekið er mið af verkleysinu og þykjustuleiknum sem einkennir Samfylkinguna og einnig Viðreisn.

Síðan á fyrstu mánuðum ríkistjórnarinnar þegar ríkistjórnin var í raun að gera eitthvað sem skiptir máli  þá hafa vinsældir ríkistjórnarinnar hríðfallið enda sér fólkið í gegnum aðgerðarleysið og þykjustuleikinn. Púðrið var uppurið strax eftir nokkra mánuði og lítið virðist vera eftir í púðurtunnunni sem átti að breyta svo miklu hér í þessu samfélagi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hvað eru Samfylkingin og Viðreisn að gera í vaxtarmálunum?

Samfylkingin og Viðreisn eru ekki að gera neitt í ríkistjórn sem skiptir raunverulega máli, þau eru bara að þykjast vera að gera það. Þessir flokkar eru lítið annað en sýndarmennskan í öllu sínu veldi. Vinnan þeirra felst í því að þykjast vera að gera eitthvað allan daginn og afraksturinn verður augljóslega minni en ekki neinn og það verður strax þjóðinni augljóst.

Í gær féll borgarstjórn Samfylkingarinnar með látum og það var fyrirséð enda fólk Samfylkingarinnar í borginni alltaf að þykjast vera að gera eitthvað en gerðu ekki neitt sem skipti máli fyrir fólkið í borginni.

Kristrún Frostadóttir setti sjálfa sig í forystu allt í kringum landið í kosningarbaráttu Samfylkingarinnar en hlaut í raun afhroð enda er hún ekki að breyta neinu í þessu samfélagi sem skiptir okkur almenning máli en hún er bara að þykjast vera að gera það og því fer sem fer.

Þennan þykjustuleik leikur Samfylkingin og Viðreisn í ríkistjórn alla daga í dag og það það mun verða þeim og ríkistjórninni að falli mun fyrr en þau grunar. Eina sem  sem  þessir flokkar eru að gera er að byggja upp sinn eigin fílabeinsturn alla daga með PR mennsku og aðgerðarleysi og á meðan hverfur fylgi þeirra.

Hvað eru Samfylkingin og Viðreisn að gera í vaxtarmálunum? Þau eru alltaf að þykjast vera að gera eitthvað en gera ekki neitt og vextir fara sí hækkandi og fólkið er ennþá sligað af oftöku bankanna og verðbólgu sem étur upp eignir fólksins í landinu.

Engin ný nálgun, seðlabankastjóri leikur hér lausum hala og engar jákvaðar breytingar eru framkvæmdar. Hausnum er stungið í sandinn og fólki gefið rósir í staðinn eins og rósir greiði fyrir það reikningana.

Hvað er Samfylkingin og Viðreisn að gera í milliverðlagningu/undirverlagningu á sjávarútvegsauðlindinni sem er ekkert annað en auðlindarrán og undanskot frá því að greiða rétt til samfélagsins? Þau eru að gera ekki neitt! Þau eru bara að þykjast vera að gera eitthvað en eru ekki að gera neitt eins og í öllum málum sem skipta þetta þjóðfélag verulegu máli.

Mundu Kristrún, þið voruð kosin vegna ákalls þjóðarinnar um raunverulegar breytingar.

Útgerðir eru sumar langt yfir lögum um kvótaþak sem stuðlar auðvitað að áframhaldandi samþjöppun aflaheimilda og ójafnvægi í samfélagsgerðinni. Hvað er Samfylkingin og Viðreisn að gera í því? Þau eru að gera ekki neitt, bara þykjast vera að gera eitthvað. Hvað er Samfylkingin og Viðreisn að gera í því að auka aðgengi þjóðarinnar til nýtingar sinnar eigin sjávarátvegsauðlindar með eflingu strandveiðikerfisins? Þau eru ekki  að gera ekki neitt, bara að þykjast vera það. Almenningur er fljótur að sjá í gegnum fólk sem er bara að þykjast vera að gera eitthvað.

PR-mennskan og þykjustu leikirnir hafa orðið mörgum að falli og það verður engin undantekning þar á. Kristrún Frostadóttir þú ert verkstjóri þessarar ríkistjórnar, ef þú vilt að ekki fari fyrir þessari ríkistjórn eins og borgarstjórn, hættið þá að þykjast vera að gera eitthvað og farið að gera eitthvað. Eins og staðan í dag er Samfylking og Viðreisn ekki að gera neitt sem skiptir raunverulegu máli fyrir þessa þjóð og því fer sem fer nema breytingar verði þar á.

Mundu Kristrún, þið voruð kosin vegna ákalls þjóðarinnar um raunverulegar breytingar í þessu samfélagi, þið voruð ekki kosin til að þykjast vera að breyta einhverju. Mundu líka að SVARTIPÉTUR stendur þér nær en þig grunar og hann er með þér í þessari ríkistjórn og elskar þykjustuleikinn.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: