- Advertisement -

Á að byrja sölu á Landsvirkjun?

Landsvirkjun:

Haukur Anrþórsson stjórnsýslufræðingur lætur hugann reika:

„Á þessu augnabliki má velta vöngum yfir hver ágreiningur stjórnar Landsvirkjunar og Harðar Arnarsonar er. Uns hann verður gerður opinber. Ef ég hef að verulegu leyti rangt fyrir mér tek ég þessar vangaveltur út – þær eru líka meira dægradvöl en annað. Aðilar málsins hafa haldið spilunum nærri sér.

Ég giska á að Daði Már – munum að fjármálaráðherra fer með eignarhluti félaga í eigu ríkisins – hyggist selja hlut í Landsvirkjun og breyta rekstrarformi þess. Hann skipaði í stjórn Landsvirkjunar á s.l. vori og það er eitthvað í nýrri stefnu sem deilt er um.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ég giska á að Hörður sé þessum fyrirætlunum ósammála.

Heimsókn Harðar til
forsætisráðherra…

Heimsókn Harðar til forsætisráðherra í gær – en henni kemur málið strangt tekið ekki við í ráðherrastjórnsýslunni – bendir til að erindið hafi verið að kvarta undan stjórn Landsvirkjunar og fjármálaráðherra. Munum að hann átti að ganga á fund síðarnefnda ráðherrans í gær og kveðja hann.

(Nefna má að forsætisráðherra er meiri og sýnilegri forystumaður ríkisstjórnarinnar en við höfum séð áður. Forsætisráðuneytið er ekki valdamikið ráðuneyti skv. stjórnskipuninni, fer með verkstjórnarmál – þótt það sé það í sumum öðrum stjórnskipunarmódelum. En Kristrún starfar svolítið eins og breskur forsætisráðherra.)

Kristrún hafnar því að deilan snúist um arðgreiðslur Landsvirkjunar til ríkissjóðs og verður að taka hana trúarlega um það.

En af hverju varð það síðasta verk Harðar að leita á hennar náðir?

Ef við tökum þetta lengra má annað hvort ætla að Kristrún styðji fyrirætlanir Daða Más og stjórnar Landsvirkjunar – eða af ábyrgðarleysi nefna hugtökin stjórnarslit og meðreiðarsveinaskipti hjá Kristrúnu. Guðrún bíður.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: