- Advertisement -

Að lifa í alsælu átaka

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Það er ekki einungis langvarandi þoka og súld sem þyngir lundina eilítið nú um stundir, heldur þarf maður líka að verða vitni að hverju geðvonskukastinu á fætur öðru hjá Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar. Það er eins og hún kunni ekki annað en að standa í argaþrasi.

Ég bíð bara eftir að hún byrji að rakka niður veðurfræðinginn í sjónvarpinu fyrir að spá alltaf þoku sem gerir ekki annað en að skyggja á Sólveigu. Dumbungurinn fer illa í ræfils konuna því við hin sjáum ekki nógu vel að hún er réttsýnust allra og hæfileikarík með afbrigðum. Það má bara alls ekki falla á hana skuggi. Annað væri móðgun við ofurkonuna.

Svei þér, veðurfræðingur, segi ég. Reyndar mætti Veðurstofan íhuga að gefa út sérstakar viðvaranir þegar hætta er á því að náttúran skyggi á persónutöfra Sólveigar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Eitt er þó
nokkuð öruggt.

Síðustu mánuðir hljóta að vera gósentíð í lífi Sólveigar. Hún gat eytt öllu sumrinu í að deila við þá sem vildu hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Svo kom forsendubrestur kjarasamninga henni til bjargar svo ekki yrði nú hlé á algleymistilfinningunni. Það hefði verið hörmulegt ef hún hefði neyðst til að sitja einn eða tvo daga án þess að eiga í opinberum deilum við einhvern.

Þegar því lauk tók við atlaga að vopnasystur í öðru stéttarfélagi sem hafði einfaldlega unnið betra verk í samningum við gróðasvelginn í Borgartúni 35 og ríkisstjórnina. Það er eitthvað sem Sólveig getur ekki unað við. Árásirnar á þessa vopnasystur munu því líklega standa fram yfir aðalfund ASÍ, þar sem kosið verður í stjórnir.

Hvað tekur við næst verður áhugavert að sjá. Eitt er þó nokkuð öruggt. Sólveig verður leiftursnögg að finna sér nýtt stríð. Ef enginn andstæðingur er á lausu má alltaf treysta því að hún finni sér vindmyllu til að atast í eins og Don Kíkóti. Hann sá andstæðing þar sem enginn var.

Hegðun Sólveigar kemur kannski engum á óvart. Um tíma hélt ég að þetta væri bara tímabundið skapferli sem myndi líða hjá. En eftir að hafa fylgst með henni árum saman rann smám saman upp fyrir mér að þetta er ekki frávik heldur starfsstíll. Hún stormaði inn í Eflingu með látum og klauf stéttarfélagið í herðar niður svo vart sér fyrir endann á þeim deilum enn í dag. Þá áttaði ég mig á því að hún er einfaldlega svona innréttuð.

Framganga Sólveigar minnir mig óneitanlega á Sumarliða hans Bjartmars Guðlaugssonar, en sá sagði öllum að halda kjafti og ældi yfir allt. Hann er móralsmorðingi að sögn Bjartmars sjálfs. Munurinn er þó sá að Sumarliði er lagapersóna. Sólveig er formaður verkalýðsfélags.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: