Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Nú keppast leiðandi fyrirtæki á neytendavörumarkaði við að lýsa yfir verðfrystingu eða mjög hóflegum verðlækkunum fram að áramótum. Boðskapurinn er sá að þau séu tilbúin að taka á sig afkomuhögg til að styðja við kjarasamninga og leggja sitt af mörkum í baráttunni við verðbólguna.
Það er erfitt að taka slíkan málflutning alvarlega.
Ef fyrirtækin töldu raunverulega mikilvægt að halda aftur af verðhækkunum, hvers vegna datt þeim það ekki í hug fyrr á árinu þegar gengi krónunnar var veikara? Af hverju birtist þessi meinta samfélagslega ábyrgð einmitt nú þegar forsendur kjarasamninga eru brostnar og verkföll farin að blasa mögulega við?
Frá byrjun
júlí hefur
krónan styrkst…
Það sem vekur sérstaka athygli er að fyrirtækin eru ekki að boða almennar og víðtækar verðlækkanir. Samkvæmt eigin yfirlýsingum snýst málið fyrst og fremst um innfluttar vörur, til dæmis þurrvörur á borð við pasta, núðlur og aðrar vörur þar sem innkaupsverðið ræðst að miklu leyti af gengi krónunnar.
Spurningin er því einföld: Hvað hefur breyst?
Laun hafa ekki lækkað. Virðisaukaskattur hefur ekki lækkað. Húsaleiga hefur ekki lækkað. Flestir kostnaðarliðir fyrirtækjanna standa nokkurn veginn óbreyttir.
Það sem hefur breyst er gengi íslensku krónunnar.
Frá byrjun júlí hefur krónan styrkst um nálægt fimm prósent gagnvart evrunni og öðrum helstu viðskiptagjaldmiðlum. Fyrir fyrirtæki sem flytja inn neytendavörur þýðir það einfaldlega að innkaupsverðið í íslenskum krónum hefur lækkað. Þau geta því keypt sömu vörur á hagstæðara verði en áður og tryggt sér birgðir fram að Þorra.
Þar liggur hin raunverulega skýring á verðfrystingunni.
Fyrirtækin eru ekki að færa neytendum gjöf úr eigin vasa. Þau eru fyrst og fremst að njóta ávinnings af sterkari krónu. Það er því nokkuð sérstakt að kynna þessa þróun sem fórnfýsi eða samfélagslega ábyrgð þegar um er að ræða hagstæðari innkaupaskilyrði sem þau sjálf komu ekki til leiðar.
Í stað þess að skreyta sig með stolnum fjöðrum væri nær lagi að viðurkenna einfaldlega að sterkari króna hafi lækkað kostnað við innflutning og það sé að skila sér til neytenda.