Simmi stóð á ströndu
og var að troða þjóð,
þjóð tróð hann Simmi,
og Simmi treður þjóð.
Sigmundur Davíð segir að til standi að troða íslenskri þjóð í Evrópusambandið. Með þeim afleiðingum að ég sönglaði vísuna góðu, með smá breytingum, alla morgungönguna okkar Lopa. Rétt um 45 mínútur.

„Það markmið að nýta þetta kjörtímabil til að troða Íslandi inn í ESB og helst að gera það með sem mestum blekkingum þannig að menn vakni ekki fyrr en það verður of seint,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, í samtali við Vísi.
Borin von er um að hann svari Miðjunni. Því er hér stuðst við frétt Vísis. Sigmundur Davíð sér miklar blekkingar með komu Ursulu von der Leyen hingað til lands. Hún sagði þá að umsókn Íslands um aðildarviðræður vera enn í gildi. Sigmundi Davíð er ekki skemmt.
„Eftir að við tilkynntum um það til ESB á sínum tíma og einhverjir fengu efasemdir um hve afgerandi það hefði verið þá ákvað ég að leiða það mál til lykta með bréfi sem ég afhenti persónulega á fundi með forvera Ursulu von der Leyen, Jean-Claude Juncker og Donald Tusk, þar sem þeir staðfestu að ísland væri ekki lengur umsóknarríki að ESB.“
Hann segir það eina stærstu lygi íslenskra stjórnamála á 21. öldinni að hægt sé að kíkja í pakkann hjá ESB og sjá hvað sé í boði. Þá segir hann tal um frekara samstarf á ýmsum sviðum vera fyrirslátt. Í hernaðarmálum hafi ESB verið í tómu tjóni á meðan Ísland sé með samning við mesta hernaðarveldi mannkynssögunnar.
Að mati Sigmundar Davíðs eru skrattar í öllum hornum.
-sme