- Advertisement -

Ættleiðingum fjölgar

Ættleiðingar í fyrra voru 52 en voru 34 árið 2012. Stjúpættleiðingar voru 31 en frumættleiðingar 21. Frumættleiðingar frá útlöndum voru 10 árið 2013, en hafa verið milli 16 og 18 talsins síðustu fjögur ár. Undanfarin ár hafa flest ættleidd börn verið frá Kína og árið 2013 eru einnig flestar ættleiðingar þaðan, eða fjögur, en einnig voru ættleidd fjögur börn frá Kólumbíu. Frá því að frumættleiðingar frá Kína hófust árið 2002 hafa þær þó ekki verið færri á einu ári.

Stjúpættleiðingar árið 2013 voru 31. Það er fjölgun frá árinu 2012, en þá voru þær óvenjulega fáar eða 17. Í öllum tilvikum var stjúpfaðir kjörforeldri, en það hefur jafnan verið algengast. Frumættleiðingar innanland voru 11 árið 2013, og hafa þær einungis einu sinni verið fleiri á einu ári frá 2000, það var árið 2006 þegar þær voru 19.

Með hugtakinu stjúpættleiðing er átt við ættleiðingu á barni (eða kjörbarni) maka umsækjanda. Með hugtakinu frumættleiðing er átt við ættleiðingu á barni sem ekki er barn maka umsækjanda.

sjá frétt á vef Hagstofu Íslands.

 

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: