- Advertisement -

„Allt er í þoku og óvissu“

Breyta öllu skipulagi með þrengingarstefnu og rústa aðgengi fjölskyldubílsins að götum borgarinnar.

Vigdís Hauksdóttir skrifar:

Hér er bókun mín sem ég lagði fram í morgun á fundi skipulags- og samgönguráðs um borgarlínu:

„Hér er á ferðinni umsögn um tillögu að matsáætlun fyrsta áfanga Borgarlínu, Ártúnsholt – Hamraborg, frá Reykjavíkurborg til Skipulagsstofnunar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Er þetta eitthvert grín.

Margt er þar sem vekur athygli en þó eru nokkur atriði mjög afhjúpandi svo ekki sé meira sagt.

Umsögnin afhjúpar að verkefnið er komið mjög stutt hugmyndafræðilega hvað varðar tæknihlið borgarlínu. Í kaflanum um hljóðvist segir: „Hér vantar eina breytu sem er ekki þekkt á þessari stundu sem er hávaði frá væntanlegum ökutækjum Borgarlínunnar. Mat á áhrifum ætti að draga fram mögulega valkosti t.d. hljóðláta rafmagnsvagna og eða vagna með háværari vélar.“

Jafnframt segir í kaflanum um loftgæði: „Líkt og með hljóðvist ætti að reyna að leggja mat á hvers eðli ökutæki Borgarlínunnar verða með tilliti til áhrifa á loftgæði, bæði útblástur og svifryk.“

Er þetta eitthvert grín. Til stendur að leggja í fleiri tugi milljarða ef ekki hundrað í borgarlínu, breyta öllu skipulagi með þrengingarstefnu og rústa aðgengi fjölskyldubílsins að götum borgarinnar og enn er ekki farið að ræða hvort borgarlínuvagnar verði rafmagnsvagnar, eða háværir, mengandi dísel/bensín vagnar.

Er ekki tímabært að ríkisstjórnin og nágrannasveitarfélög Reykjavíkur vakni og átti sig á hvaða flopp þetta verkefni er sem keyrt er áfram af borgarstjóra. Það er ekki verkefni þessara aðila að uppfylla kosningaloforð Samfylkingarinnar.“

Meirihlutinn hreyfði andmælum og þá gagnbókaði ég:

„Borgarlínuverkefnið er martröð aftan úr grárri forneskju. Illa skipulagt, illa framkvæmanlegt og engar áætlanir eru til um stofnkostnað – hvað þá rekstrarkostnað. Allt er í þoku og óvissu. Nútíminn og framtíðin eru vistvænir fjölskyldubílar, aukin hjólreiðanotkun, deilibílar og sjálfkeyrandi ökutæki.

Ekkert er fast í hendi í borgarlínuverkefninu nema það að búið er að skipa „borgarlínuhóp“ sem heldur uppi stöðugum áróðri fyrir verkefninu og krafan um að ríkið komi með gríðarlegt fjármagn inn í verkefnið.

Ég írteka á ný – hvers vegna er ríkisstjórnin og nágrannasveitarfélög Reykjavíkur að vinna að því að uppfylla kosningaloforð Dags. B. Eggertssonar, Samfylkingarinnar og meirihlutans í Reykjavík?“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: