Ósætti:
Sigurjón Magnús Egilsson skrifaði:
Kannski er ótímabært að skrifa minningargrein um Alþýðusamband Íslands. Eða hvað? Virkilega plássfrekt fólk heldur um stjórnartaumana í stærstu félögu og samtökum launafólks. Ljóst er að ekki pláss fyrir þau öll í efstu tröppu.
Finnbjörn Hermannsson forseti ASÍ ætlar ekki að gefa kost á sér til endurkjörs. Þrír varaforsetar eru innan sambandsins; Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir er fyrsti varaforseti. Hún kemur að austan, frá Afli Starfsgreinafélagi. Næst eru það 2. og 3. varaforsetar. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar er 2. varaforseti og Halla Gunnarsdóttir formaður VR er 3. varaforseti.
Útilokað er að önnur þeirra verði næsti forseti. Fari samt þannig er víst að ASÍ muni þá klofna á 110. starfsafmæli sínu. Ekki yrði heldur sátt um Skagamanninn Vilhjálm Birgisson. Aukin heldur yrði aldrei sátt um einhvern annan frambjóðanda frá VR eða Eflingu.
Ósætti meðal forystufólks í félögum innan ASÍ er það djúpt og allt að því hatursfullt að veruleg hætta er á að ASÍ, alla vega í þeirri mynd sem nú er, standi ekki ágreininginn af sér.
Sú staða sem uppi er er ómöguleg með öllu. ASÍ er annað og stærra en það fólk sem tekst núna á.
Sólveig Anna Jónsdóttir verður meðal gesta í Sonum Egils á Samstöðinni klukkan 12:40 í dag.