- Advertisement -

Birgir Guðmundsson biðji Ingu Sæland afsökunar!

Stjórnmál:

Jóhann Þorvarðason skrifar:

Birgir Guðmundsson, fyrrverandi prófessor, virðist telja sig handhafa sannleikans ef marka má ummæli hans í Bítinu um Guðmundar Inga-málið. Hann sagði orðrétt um Ingu Sæland:

„En þegar maður skrælir þessi tilfinningamál af þá er það sem stendur eftir að hún sagði opinberlega ekki alveg rétt frá, miðað við það sem var sagt.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

…hagsmunir voru
í húfi fyrir
aðstoðarkonuna.

Séu orð Birgis „skræld“ með sama hætti felst í þeim sú ásökun að Inga Sæland hafi ekki sagt satt, bæði opinberlega og í ræðustól Alþingis. Slíkar ásakanir eru alvarlegar og kalla á traustan sönnunargrunn. Sá grunnur hefur hins vegar ekki verið lagður fram.

Röksemdir Birgis virðast að verulegu leyti byggjast á skilaboðum frá þáverandi aðstoðarkonu Guðmundar Inga á þeim tíma sem hann lá veikur á sjúkrahúsi. Birgir virðist ganga út frá því að frásögn hennar sé óumdeilanlega rétt og að hún hafi haft fullnægjandi yfirsýn yfir atburðarásina. Það er þó ályktun sem ekki liggur sjálfkrafa fyrir. Raunar alls ekki.

Þá verður ekki litið fram hjá því að verulegir fjárhagslegir hagsmunir voru í húfi fyrir aðstoðarkonuna. Eiginmaður hennar, Ragnar Þór Ingólfsson, tók við ráðherraembætti eftir afsögn Guðmundar Inga. Laun og kjör fjölskyldunnar bötnuðu umtalsvert við þá stöðu. Það gefur tilefni til að fara varlega í að gera skilaboðin að hornsteini jafn afdráttarlausra niðurstöðu og Birgir kýs að gera.

Skilaboðin ein og sér duga þannig ekki sem sönnun fyrir því að Inga Sæland hafi farið með ósannindi eins og Birgir heldur fram.

Jafnframt virðist Birgir gefa sér að aðstoðarkonan hafi haft beina vitneskju um öll samtöl Valkyrjanna. Fyrir því hafa ekki verið færð sannfærandi rök og því varhugavert að byggja á slíkri forsendu.

…ókurteisi og
ærumeiðingu
í garð Ingu Sæland.

Loks vísar Birgir til ummæla forsætisráðherra um að mál sem þetta verði ekki til í tómarúmi. Sú staðreynd breytir þó engu um kjarna málsins. Auðvitað voru veikindi Guðmundar Inga rædd milli oddvita ríkisstjórnarinnar, við Guðmund sjálfan eins og komið hefur fram og meðal forystufólks Flokk fólksins. Annað hefði verið óeðlilegt í ljósi þess að óvissa ríkti um heilsufar hans og hversu lengi hann yrði frá störfum.

Því er erfitt að komast hjá þeirri niðurstöðu að Birgir gangi mun lengra í ályktunum sínum en gögn málsins gefa tilefni til. Þegar svo þungar ásakanir eru settar fram ber að gera ríkari kröfur um varkárni, yfirvegun og sönnunarfærslu en Birgir hefur hingað til sýnt.

Framganga Birgis í þessu máli ber með sér vanstillingu, ókurteisi og ærumeiðingu í garð Ingu Sæland, sem samrýmist illa þeirri yfirvegun sem ætla mætti af fyrrverandi prófessor. Ég skora því á Birgi Guðmundsson að draga orð sín til baka og biðjast afsökunar á þeim.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: