- Advertisement -

Bjarni, er nýbygging Landsbankans skynsamleg?

Væntanleg nýbygging. Er hún nokkuð vel við vöxt?

Birgir Þórarinsson Miðflokki hefur lagt nokkrar spurningar fyrir Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra vegna nýbyggingar Landsbankans við austurhöfnina. Birgir vill vita hver gert sé ráð fyrir að byggingin muni kosta og hversu stór hluti hússins verði leigður út.

Af spurningunum má merkja að Birgi þyki byggingin nokkuð vel við vöxt: „Hver hefur þróun starfsmannafjölda bankans verið á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2011 og hvað má gera ráð fyrir að starfsmönnum fækki mikið árlega næstu 10 árin vegna breytinga í bankastarfsemi?“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Birgir vill að Bjarni horfi til framtíðar: „Hvernig telur ráðherra að þörf fyrir húsnæði af þessari stærð og á þessum stað undir starfsemi bankans breytist fyrstu 10 árin eftir að byggingin verður tekin í notkun með tilliti til þróunar starfsmannafjölda og breytinga í bankastarfsemi? Hvaða rök mæla með því að byggja á þessum stað? Telur ráðherra að staðsetningin sé rétt með tilliti til bankaþjónustu framtíðarinnar?“

Birgir með fleiri spurningar:

„Hvað greiðir væntanleg útleiga húsnæðisins niður stóran hluta stofnkostnaðar þess? Hvaða áform eru uppi í því sambandi?
Hvert má ætla að sé markaðsvirði lóðarinnar sem tilheyrir byggingunni og hvað nemur það stórum hluta stofnkostnaðarins?
Telur ráðherra, sem handhafi hlutabréfs ríkissjóðs í bankanum, bygginguna skynsamlega fjárfestingu? Er fyrirhuguð framkvæmd gerð með samþykki Bankasýslu ríkisins?
Kemur til greina af hálfu ráðherra að falla frá umræddum byggingaráformum og selja lóðina? Hver er skoðun Bankasýslu ríkisins þar að lútandi?
Verða núverandi höfuðstöðvar bankans í Austurstræti seldar eða yfirtekur ríkissjóður þær?
Eru uppi áform um að selja húsnæði útibúa bankans á höfuðborgarsvæðinu til að fjármagna nýbygginguna?

Hver eru áform ráðherra um meðhöndlun listskreytinga innan núverandi höfuðstöðva bankans og friðun þeirra eftir að höfuðstöðvar bankans hafa verið fluttar?“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: