- Advertisement -

Bjarni með Samherjatakta

Það er engu líkara en að Bjarni hafi leitað í smiðju Samherja í  vörn sinni.

Sigurjón Þórðarson skrifar:

Auðveldasta leiðin fyrir Bjarna fjármálaráðherra hefði verið að greina satt og rétt frá og biðjast auðmjúklega afsökunar á að hann hefði sýnt af sér gáleysi og viðurkennt  ákveðinn dómgreindarbrest. Hver hefur ekki misstigið sig?

Nei nei Bjarni fer út í það að snúa út úr sóttvarnarreglum með einhverjum hártogunum, um að gefa það í skyn að hann hafi í raun ekki verið staddur í samkvæmi heldur í verslun og ítrekar það að hann hafi verið listaverkaversluninni í korter það standist enga skoðun.

Það er auðvitað algerlega furðulegt að ráðherra kalli eftir að landsmenn sýni samstöðu um sóttvarnarreglur sem hann snýr síðan út úr, í sama viðtali.

Það er engu líkara en að Bjarni hafi leitað í smiðju Samherja í  vörn sinni, þ.e. að afneita augljósum borðleggjandi staðreyndum og draga ekki varnir við línu sem mögulegt er að verja.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: