Stjórnmál:
Björn Valur Gíslason, skipstjóriu og fyrrv. alþingismaður skrifaði:
„Að óbreyttu stefnir Ísland óðfluga í átt að alvarlegri kreppu.
„Verðbólga er 5,9% samkvæmt nýjustu mælingum og stýrivextir eru 8%.
Verðtryggð húsnæðislán með yfir 50% veðsetningu bera ríflega 6% vext og til styttri tíma um 5%. Óverðtryggð húsnæðislán með yfir 50% veðhlutfalli bera tæplega 10% vexti og til skemmri tíma tæplega 9% vexti.
Atvinnuleysi mælist nú rétt um 7% og þeim fer fjölgandi sem eru án atvinnu. Kjarasamningar eru í uppnámi og stefnir í hörð átök á vinnumarkaði.
Fjöldi gjaldþrota er yfirvofandi í byggingariðnaði með tilheyrandi hliðarverkunum á aðrar greinar og atvinnulífið í landinu almennt.
Hvorki almenningur né atvinnulífið mun þola þetta ástand mikið lengur og er þó margt enn ótalið.
Stjórnvöld virðast ráðlaus og það litla sem þau hafa haft til málanna að leggja til þessa mun einungis gera slæmt ástand verra.
Það er í raun merkilegt að ekki skuli nú þegar vera meiri órói í almenningi, stéttarfélögum og atvinnurekendum vegna stöðunnar og sterkari krafa uppi um að gripið verði til gagnlegar aðgerða.“