- Advertisement -

Eflingarfólk er tilbúið í verkfall ef þarf

Mestur var viljinn til verkfallsþátttöku hjá þeim sem hafa mestar fjárhagsáhyggjur og var viljinn einnig heldur meiri meðal erlends verkafólks en meðal Íslendinga.

Eftirfarandi frétt er að finna á heimasíðu Eflingar:

Í könnun sem Gallup gerði meðal Eflingarfélaga síðastliðið haust var meðal annars spurt um vilja félagsmanna til að grípa til verkfallsaðgerða. Spurningin var svohljóðandi: „Almennt, hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ert þú því að fara í verkfall með það að markmiði að ná fram bættum kjörum?“

Metþátttaka var í könnuninni og svöruðu 3.558 spurningunni. Eins og sýnt er á fyrri myndinni er afgerandi meirihluti svarenda hlynntur því að fara í verkfall til að sækja betri kjör, hvort sem litið er til allra svarenda eða þeirra sem tóku afstöðu. Um tveir þriðju svarenda sögðust hlynnt beitingu verkfallsvopnsins (um 19% voru óviss og 15,5% andvíg) og rúmlega 80% þeirra sem tóku afstöðu voru hlynnt.


Mestur var viljinn til verkfallsþátttöku hjá þeim sem hafa mestar fjárhagsáhyggjur og var viljinn einnig heldur meiri meðal erlends verkafólks en meðal Íslendinga. Þá var meiri vilji til beitingar verkfalla til kjarabóta meðal þeirra sem hafa lægri heildarlaun, eins og sjá má á seinni myndinni.

Svarhlutföll eru mjög áþekk því sem var í síðustu könnun þar sem sömu spurningar var spurt. Það var snemma árs árið 2019, áður en kjarasamningar náðust, en þá var verkfallsvopninu beitt með árangursríkum hætti.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: