- Advertisement -

Ég vil sjá hugmyndir um raunhæfar lausnir, ekki drauma og ekki átrúnað

Guðmumdur Þ. Ragnarsson skrifar:

„Fyrir mér er þetta að verða óþolandi að sama fólkið sem boðaði okkur að hér yrði gerð hin varanlega lausn á okkar efnahagsmálum, minnist ekki á stöðuna eins og hún er í dag.“

„Þó verðbólgan og vextirnir hækki eru engin af þessu sömu einstaklingum að boða einhverjar lausnir á stöðu efnahagsmála hér í dag.“

„Það er sorglegt að horfa upp á það hvernig ríkistjórninni hefur tekist að draga athyglina frá stöðunni í efnahagsmálunum, með því að setja þessar aðildarkosningar að ESB á dagskrá 29. ágúst.

Enginn bað um þessar kosningar.

Þetta var snilldar útspil og er að ganga upp, en gerir ekkert annað en að fresta vandamálunum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það er líka sorglegt að lesa og hlusta á sömu einstaklinga sem boðuðu það fyrir síðustu alþingiskosningar að verðbólgan og vextirnir yrðu lamin niður eins og það væri ekkert mál.

Boða nú að með inngöngu í Evrópusambandið verði Ísland paradís á jörð.

Þó verðbólgan og vextirnir hækki eru engin af þessu sömu einstaklingum að boða einhverjar lausnir á stöðu efnahagsmála hér í dag.

Það er hin mikli bráðavandi sem þarf að leysa og allir kalla eftir.

Sumir eru svo ósvífnir að tala um að taka upp evru ekki seinna en 2031 eins og Pawel Bartosezek gerði í Morgunblaðinu 14.07.2026. Þetta setur hann fram án þess að koma með einhverjar hugmyndir um hvernig við ætlum að ná Maastricht viðmiðunum. Síðan virðist það vera einu rökin að lofa lágum vöxtum, án þess að rökstyðja hverjar eru forsendurnar fyrir því að það geti orðið.

Fyrir mér er þetta að verða óþolandi að sama fólkið sem boðaði okkur að hér yrði gerð hin varanlega lausn á okkar efnahagsmálum, minnist ekki á stöðuna eins og hún er í dag. Heldur leiði umræðuna annað á sömu innihaldslausu forsendunum og boðað var að lemja niður verðbólguna og vextina með.

Það eru þung ský að hrannast upp í efnahagsmálum okkar, því er það forgangskrafa að eitthvað af þessu fólki með sleggjuna fari að einbeita kröftum sínum að lausn þeirra mála. Heldur en að vera eins og forystumenn í sértrúasöfnuði að boða það að ef hjörðin geri eins og þeir boði muni hún komast í paradís í ESB.

Ég vil sjá hugmyndir um raunhæfar lausnir. Ekki drauma um eitthvað. Ekki átrúnað. Ekki innihaldlaus loforð. Einbeitum okkur að vandanum sem blasir við, ekki paradís sem er teiknuð upp í fjarlægri framtíð.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: