- Advertisement -

Einungis 6,5% örorkulífeyrisþega fá óskertan lífeyri

Ólafur Ísleifsson, alþingismaður, lagði fram fyrirspurn til Ásmundar Einar Daðasona, félags og barnamálaráðherra, um skerðingar í almannatryggingakerfinu. Niðurstöðurnar í svari ráðherra eru þær að 93,5% örorkulífeyrisþega þurfa að búa við skerðingar, og 93,9% endurhæfingarlífeyrisþega.

Fyrirspurn Ólafs hljóðaði svo:

1.      Hversu mikið skertist lífeyrir almannatrygginga á árinu 2018 vegna:
                  a.      atvinnutekna lífeyrisþega,
                  b.      greiðslna til lífeyrisþega úr lífeyrissjóðum,
                  c.      tekna lífeyrisþega annarra en atvinnutekna og greiðslna úr lífeyrissjóðum?
     2.      Hversu margir í heild og hversu hátt hlutfall lífeyrisþega sætti skerðingum vegna:
                  a.      atvinnutekna,
                  b.      greiðslna úr lífeyrissjóðum,
                  c.      tekna annarra en atvinnutekna og greiðslna úr lífeyrissjóðum?
    Svör óskast sundurliðuð eftir því hvort ræðir um elli-, örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.

Svar ráðherra er í formi töflu, sem miðast við réttindastöðu í júlímánuði árið 2018.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þar kemur fram að 5.089 öryrkjar eru skertir vegna atvinnutekna og nemur skerðingin 4.074.000 milljónum í heildina, eða rúmum 4 milljörðum. Þetta gerir rúmlega 800 þúsund krónur á mann að meðaltali.

9.565 öryrkjar eru skertir vegna tekna úr lífeyrissjóði og nemur skerðingin hjá þeim 8 milljörðum og 663milljónum króna. Það gerir rúmlega 900 þúsund á mann, að meðaltali. 

9.305 öryrkjar eru svo skertir vegna annara tekna, og nemur skerðingin þar rúmum milljarði, eða tæplega 120 þúsund á hvern, að meðaltali.

Í heild eru því greiðslur til 18.141 örorkulífeyrisþega skertar um fimmtán milljarða, sjö hundruð tuttugu og sex milljónir. Það þýðir að hver og einn þessara rúmlega átján þúsund einstaklinga, þarf að þola skerðingar á örorkulífeyri sínum um krónur 866.876 á árinu 2018.

Rétt er að taka fram að tafla sú sem ráðherra birtir í svari sínu, og er fengin frá Tryggingastofnun, er ekki skýr um upphæðir, en gert er ráð fyrir að hún birti fjárhæðir í milljónum króna.

Hér er svo taflan í heild sinni.



SkerðingFjöldi skertirFjöldi alls
Ellilífeyrisþegar    
At­vinnu­tekj­ur1.0761.44235.8494,0%
Lí­f­eyr­is­sjóðstekj­ur34.19233.18935.84992,6%
All­ar aðrar tekj­ur4.63930.95235.84986,3%
All­ar tekj­ur39.11433.85935.84994,4%
Örorkulífeyrisþegar    
At­vinnu­tekj­ur4.0745.08919.40026,2%
Lí­f­eyr­is­sjóðstekj­ur8.6639.56519.40049,3%
All­ar aðrar tekj­ur1.0969.30519.40048,0%
All­ar tekj­ur15.72618.14119.40093,5%
Endurhæfingarlífeyrisþegar    
At­vinnu­tekj­ur2786781.93735,0%
Lí­f­eyr­is­sjóðstekj­ur4144081.93721,1%
All­ar aðrar tekj­ur921.2621.93765,2%
All­ar tekj­ur8811.8191.93793,9%


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: