- Advertisement -

Eyþór Arnalds flýr af hólmi

Eyþór Arnalds hefur tilkynnt að hann sé hættur við framboð. Segist vera afhuga framboði. Samt eru aðeins fáir dagar síðan hann var harðákveðinn í að berjast fyrir sæti sínu.

Eyþór stígur þar með samskonar skref og Páll Magnússon gerði fyrir þingkosningarnar.

Hildur Björnsdóttir er því, enn sem komið er, eini frambjóðandinn í fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Hildur á ekki stuðning gamla íhaldsins í borginni. Þar á bæ eru menn sem vildu helst af öllu reka hana úr flokknum sökum stuðnings hennar við samgöngustefnu meirihlutans.

Eldri flokksmenn munu nú leita að frambjóðanda gegn Hildi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: