- Advertisement -

Ferðaþjónustan berst í bökkum

Há laun og sterk króna skaða ferðaþjónustuna.

Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, skrifar:

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að fyrstu verkfallsaðgerðir verkalýðsfélagsins komi til með að beinast gegn „hinum breiðu bökum ferðaþjónustunnar,“ það er, stórum fyrirtækjum á sviði þjónustu við erlenda ferðamenn á Íslandi.

Það er ekki hægt að einangra einstök fyrirtæki í ferðaþjónustu og beina aðgerðum gegn þeim og halda að áhrifin verði bara þar. Ferðaþjónusta er keðja af þjónustu margra fyrirtækja og einstaklinga og það langt út fyrir það sem vanalega flokkast sem ferðaþjónusta.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Verkfall í einum þætti hennar hefur umsvifalaust áhrif á alla keðjuna og setur ferðalög og skipulagningu ferða um Ísland í uppnám. Auk þess væri áhugavert að vita hvar Ragnar og félagar ætla að finna breið bök í ferðaþjónustu um þessar mundir.

Ferðaþjónustufyrirtæki, bæði stór og smá, berjast mjög mörg í bökkum um þessar mundir, eftir miklar launahækkanir frá árinu 2015 og áhrifa af sterku gengi krónu, sem hafa stórskert samkeppnishæfni íslenskar ferðaþjónustu á alþjóðamörkuðum.

Þetta vita allir, sem það vilja vita. Að brjóta ferðaþjónustu niður með verkföllum er ekki ávísun á launahækkanir langt umfram verðmætasköpun, heldur þvert á móti – það er ávísun á veruleg vandræði sem munu bitna á öllu atvinnulífinu og þjóðarbúinu í heild.

Fengið af Facebooksíðu Bjarnheiðar.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: