- Advertisement -

Óundirbúin og órökstudd ákvörðun

Stjórnmál „Ákvörðun ríkisstjórnarinnar nú er greinilega óundirbúin og órökstudd. Engin greining hefur verið unnin á kostnaði og ábata og enginn veit hversu mörg störf eiga að flytjast norður,“ skrifar Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar í Fréttablaðið í dag, og hann gagnrýnir þar ákvörðunina um að flytja Fiskistofu til Akureyrar, eða réttara sagt, hluta Fiskistofu.

Árni Páll er gagnrýnin og skrifar: „En ákvörðunin hefur þar fyrir utan á sér sérkennilegan brag. Það er eins og það sé orðið markmið forystu ríkisstjórnarinnar að gera út á þá togstreitu sem óhjákvæmilega er milli höfuðborgar og landsbyggðanna og magna hana sem kostur er, til að skapa flokkunum sérstöðu og auka fylgi þeirra í hinum dreifðu byggðum. „Við erum sko alvöru Íslendingar“ gæti verið einkunnarorð þessarar stefnu.“

Hann segir gott að styðja við atvinnuuppbyggingu í landsbyggðunum og að ekki sé sjálfgefið að öllum störfum sé markaður staður á höfuðborgarsvæðinu.

„Það er ekki jafn sjálfgefið að flytja stofnanir með manni og mús milli landshluta. Reynslan hefur ekki sýnt að slíkar ákvarðanir eldist vel og tilraunir í þá veru hafa runnið út í sandinn.“

Formaður Samfylkingarinnar segir sinn flokk hafa talað fyrir störfum án staðsetningar. „Þess vegna höfum við komið í gegn stórum áföngum til jöfnunar húshitunarkostnaðar og flutningskostnaðar og viljum ganga þar enn lengra. Þess vegna höfum við lagt höfuðáherslu á háhraðatengingar og samgöngubætur um allt land.“

Hann segir samband höfuðborgar og landsbyggða verður að byggja á gagnkvæmri virðingu. „Höfuðborgin þarf á landsbyggðunum að halda og landsbyggðirnar á höfuðborginni. Landsbyggðirnar eiga undir högg að sækja og þurfa stuðnings við, enda býr fólk þar oftar við lakari kjör og félagslega stöðu. Við þurfum öfluga byggðastefnu sem byggist á bestu fáanlegri þekkingu, en ekki tilviljanakenndar ákvarðanir einstakra ráðherra í vinsældakapphlaupi.“

Árni Páll segir svo í lok greinar sinnar að enginn verði meiri eða betri Íslendingur á að búa á einum stað eða öðrum og það er engum til góðs að kynda glæður óvildar að óþörfu.

 


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: