- Advertisement -

Fjórar milljónir í hátíð Vigdísar

Samfélag Ríkisstjórnin hefur samþykkt að verja fjórum milljónum króna sínu til hátíðardagskrár sem haldin verður á Arnarhóli sunnudaginn 28. Júní í sumar. Þá verður þess minnst að 35 ár verða frá kjöri Vigdísar Finnbogadóttur í embætti forseta Íslands.

Fyrir viðburðinum fer Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum í samvinnu við Alþingi, Reykjavíkurborg, Framkvæmdanefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna og fjölmörg samtök. Skipuð hefur verið framkvæmdanefnd, sem mun bera ábyrgð á undirbúningi viðburðarins og mun Lilja D. Alfreðsdóttir, verkefnisstjóri í forsætisráðuneyti, taki sæti í framkvæmdanefndinni fyrir hönd stjórnvalda.

Háskóli Íslands, Reykjavíkurborg og Framkvæmdanefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna hafa heitið fjárhagslegum stuðningi við verkefnið, alls 4 til 5 milljónir króna, en áætlað er að heildarkostnaður nemi um 16-18 milljónum króna.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: