- Advertisement -

Flokknum fórnað

Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifar:

Það fer vart á milli mála á hvað leið forysta Sjálfstæðisflokksins íer  þessu máli. Í stað þess að beina kastljósi og sök að þeim sem ástunduðu gagnaþjófnað og njósnir, þá á að nota málið til þess að draga úr trúverðugleika héraðssaksóknara. Einnig er neikvæðri athygli svo undarlegt sem það nú er beint að „stofnuninni“ RÚV og tortryggð meðferð stofnunarinnar á persónugreinanlegum gögnum, en RÚV upplýsti um málið.

Eitt sinn kenndi Sjálfstæðisflokkurinn sig við að vera útvörður borgaralegra gilda og laga og reglna. Nú er öldin önnur og ekki ber á öðru en að forysta flokksins telji að stórlaxarnir þeirra eigi að vera jafnari en aðrir og það megi beita flestum meðölum til svo að svo megi verða m.a. að rífa niður réttarvörslukerfið og draga markvisst úr trúverðugleika þess. Það er hætt við að þessi forgangsröðun geti orðið framtíð Sjálfstæðisflokksins skeinuhætt.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: