Stjórnmál:
Sunna Guðrún Sigurðardóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í SV-kjördæmi, skrifaði grein í Moggann um Flokk fólksins. Greinin birtist í helgarblaði Moggans. Hér er lokakafli greinarinnar:

„Staðan sem upp er komin er sú að einn af þremur ríkisstjórnarflokkum er búinn að missa tiltrú kjósenda sinna, og skyldi engan undra. Þingmenn og ráðherrar flokksins eru ítrekað að gera einhver axarsköft og koma sér í klandur, í ofanálag hafa sum þeirra líka sýnt af sér hegðun sem að mínu mati vekur alvarlegar spurningar um spillingu. Þetta er staðan, og hún er óviðunandi. Nýliðinn í ríkisstjórn, Flokkur fólksins, veldur ekki verkefninu og því þarf hann að víkja og hleypa öðrum að. Þótt við höfum þolinmæði og stundum húmor fyrir vandræðagangi unglinga þá er þarna um að ræða fullorðið fólk í valdastöðum sem mér finnst hafa látið okkar ágæta samfélag líta út eins og hálfstjórnlaust bananalýðveldi upp á síðkastið. Okkur berast fregnir af furðulegum atburðum og umræðu stjórnmálamanna í öðrum löndum, sem mögulega hefur gert það að verkum að við kippum okkur minna upp við það sem gengið hefur á hérlendis. Við megum samt ekki verða samdauna þessu, megum ekki verða dofin og hætta að kippa okkur upp við enn eitt spillingarmálið og vanhæfi úr þessari átt. Nú er mál að linni, því þetta er orðið vandræðalegt fyrir okkur hin.“