- Advertisement -

Guðný með ólæknandi krabbamein: „Ætla að lifa því ég er of ung til að deyja og má ekki vera að þessu“

Guðný María Arnþórsdóttir söngkona og sannkallaður gleðigjafi hefur því miður greinst með ólæknandi krabbamein í beinmerg.

Segist Guðný þó ætla að verða hið minnsta 120 ára gömul, en flestir kannast við hina hressu og skemmtilegu Guðný Maríu; hefur glatt fólk með innilegum lögum sínum og listrænum myndböndum við þau, sem meðal annars má finna á YouTube.

Nýverið sagði hún frá því á Facebook-síðu sinni að hún hefði greinst með krabbamein í beinmergi, sem kallast á fræðimáli: Waldenstroms, og er því miður ólæknandi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hér fyrir neðan má sjá færslu Guðnýjar sem er bjartsýn á lífið og tilveruna þrátt fyrir mikið áfall:

„í dag fékk Guðný María þær fréttir að hún hefði greinst með beinmergs-krabbamein sem heitir „Waldenströms“ sem er ólæknandi. Hún byrjar í lyfjameðferð í næstu viku og miklu skiptir hvernig líkami hennar bregst við. ❤þetta er töff staða en samt sem áður get ég sagt þér að ég ætla að lifa og verða afar gömul kona, alla vega 120 ára, ég er alltof ung til að deyja og má alls ekki vera að þessu🙂Ég á eftir að gera svo margt,❤stuðningur þinn og vinátta skiptir mig afar miklu, love you yndið mitt“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: