- Advertisement -

Hægri andspyrna við vegasköttum

Sjálfstæðismenn eru upphafsmenn nýrra vegaskatta. Tóku í raun yfir samgönguráðuneytið og snéru samgönguráðherranum um 180 gráður. Hann sem barðist manna mest gegn vegasköttum en fer nú að vilja Sjálfstæðisflokksins og berst nú fyrir því sem hann áður fordæmdi. Það þarf svo sem ekki að koma á óvart.

Jón Gunnarsson, yfirsamgönguráðherra ríkisstjórnarinnar, mætir nú óvæntri andspyrnu. Yst frá hægri. Davíð Oddsson er á móti.

„Ríkið áætl­ar að skatt­leggja bifreiðareigendur um nær 50 millj­arða króna á þessu ári. Meira en þriðjung­ur þeirr­ar fjár­hæðar, um 18 millj­arðar króna, á að fara til annarra mála en vega­gerðar,“ skrifar hann í Staksteina dagsins.

Þú gætir haft áhuga á þessum

„…staðan er hins veg­ar sú að flest­ir bifreiðareigendur eru skattlagðir af mikl­um þunga, bæði þegar þeir kaupa bíla og þegar þeir nota þá, en stór hluti skatt­anna fer í annað en vegi, þá er orðið mun hæpn­ara að leggja á veggjöld til al­mennr­ar upp­bygg­ing­ar vega­kerf­is­ins,“ bætir gamli foringinn við.

Davíð hefur fleiri athugasemdir við framgang Jóns og auðvitað Bjarna fjármálaráðherra

„Væri slík­um veggjöldum bætt við nú­ver­andi skatta á bifreiðareigendur, sem að stór­um hluta fara til annarra verk­efna en vega­gerðar, þá væri erfitt að halda öðru fram en að í raun væri um aukna al­menna skatt­lagn­ingu að ræða.“

Davíð skellir ekki hurðum á þá kumpána. Skilur eftir rifu svo þeir geti, eftir sem áður, gengið í þeim takti sem hann slær:

„Verði aðrir skatt­ar á bifreiðareigendur lækkaðir á móti og tryggt að bif­reiðaskatt­arn­ir sem eft­ir væru færu all­ir í vega­gerð væru hug­mynd­ir um stór­auk­in veggjöld ann­ars eðlis.“ 


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: