- Advertisement -

Halldóra kvartar formlega undan Ásmundi og Brynjari

Halldóra Mogensen, Pírati og formaður velferðarnefndar Alþingis, hvaddi sér hljóðs á Alþingi fyrir fáeinum mínútum. Hún fann þar að orðum Ásmundar Friðrikssonar Sjálfstæðisflokki þar sem hann bar hana sérstaklega og aðra þingmenn Pírata einnig þeim sökum að þau lækju trúnaðarupplýsingum til Stundarinnar.

„Ásmundur Friðriksson sakaði mig um alvarleg brot í starfi mínu sem formaður velferðarnefndar, um trúnaðarbrest og gagnaleka sem ég er algjörlega saklaus af, og það veit þingmaðurinn vel. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann sakar mig um slíkt, en Sjálfstæðismenn vita mæta vel að ef þeir endurtaka lygina nógu oft munu einhverjir trúa henni. Ég  hafna þessum ásökunum Ásmundar Friðrikssonar og fordæmi orð hans. Ásakanir þingmannsins hafa kastað rýrð á störf mín, störf nefndarinnar og störf þingsins.,“ sagði Halldóra og talaði næst um þátt Brynjar Níelssonar.

„Þá eru athafnir þingmannsins Brynjars Níelssonar, sem var í forsetastóli Alþingis, algjörlega óforsvaranlegar. Það sem gerðist er að þingmanni Sjálfstæðisflokksins var leyft að hafa uppi alvarlegar og grófar aðdróttanir í minn garð og mér var ekki gefið tækifæri á að svara fyrir mig, þar sem þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sá sem sat í forsetastól, hunsað ítrekaðar beiðnir mínar til að ræða fundarstjórn til að bera af mér sakir. Hann horfði beint í augun á mér og frestaði svo fundi í stað þess að gefa mér orðið. Er mín upplifun sú að þingmaður Sjálfstæðisflokksins hafi þarna misnotað aðstöðu sína sem varaforseti Alþingis til að viðhalda aðdróttunum þingmannsins Ásmundar Friðrikssonar í minn garð.

Ég vænti þess að þetta mál fái tilhæfilega meðferð í forsætisnefnd Alþingis.“

Hér er ræða Halldóru:


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: