- Advertisement -

Helför Araba sýnd í beinni – í boði ríkisstjórnar Ísraels

„Við erum að drepa dýr í mannsmynd,“ sagði varnarmálaráðherra Ísraels.

Birgir Dýðfjör skrifar:

Þegar ég heyrði þessi ummæli ráðherra Ísraels, um loftárásirnar á flóttafólkið, sem þeir höfðu sjálfir skipað að flýja til suðurhluta Gasa, þá ómaði í huga mínum „Heil Hitler, heil Hitler“.

Þegar nasistar skipulögðu helför gyðinga, þóttust þeir vera „að útrýma dýrum í mannsmynd.“

Allar götur og torg og færar leiðir urðu þá troðfull af innikróuðum konum og börnum, eins og fé í rétt.

Nú þegar ríkisstjórn Ísraels tileinkar sér hugmyndafræði nasista og ákveður loftárásir til að slátra troðfullum götum af varnarlausum konum og börnum, sem eiga sér hvergi skjól, og segjast svo gera það til að bjarga þjóð sinni frá „dýrum í mannsmynd“, þá verður venjulegt fólk orðvana.

Stjórn Ísraels skipaði íbúum í gettóinu í Gasa að bjarga lífi sínu, og fara í suðurhluta gettósins.

Allar götur og torg og færar leiðir urðu þá troðfull af innikróuðum konum og börnum, eins og fé í rétt.

„Dýrum í mannsmynd“  eins og það heitir á máli ríkisstjórnar Ísraels.

Þegar búið var að þjappa þessum „dýrum í mannsmynd“ saman, þá kom flugher Ísrael og sprengdi þau í tætlur, og drap þau með sama miskunnarleysi og nasistar gyðinga. 

Stigsmunur,  eðlismunur?

Það er augljós stigsmunur á drápstækni þýsku nasistanna, og ríkisstjórnar Ísralels.

En er einhver eðlismunur á hugmyndafræði harðlínu-Síonista í Ísrael og Nasistastjórn Hitlers? 

Viðbjóðurinn, sem þessi slátrun flughers ríkisstjórnar Ísraels framdi á innikróuðum konum og börnum, hann hefur kveikt hatur, sem mun leiða hörmungar yfir Gyðinga um allan heim.

Það hatur verður arfur núverandi ríkisstjórnar harðlínu-Síonista til þjóðar sinnar.

Gyðingar eru gott fólk

Við skulum ekki gleyma því, að Ísrael er eina alvöru lýðræðisríkið í  Mið-Austurlöndum, og gyðingar þrá og vilja búa við lýðræði í friði, frelsi, og öryggi eins og aðrar þjóðir.  

Við skulum líka muna það vel nú, að á nýliðnu sumri þustu tugir þúsunda gyðinga, aftur og aftur út á götur og torg, að verja lýðræði og dómstóla, að verja réttarríkið, gegn aðför þeirrar ríkisstjórnar harðlínu- Síonista, sem nú stjórna Ísrael.

Þau mótmæli sýndu andúð almennings á stjórn harðlínu-Síonistanna. Stjórn þeirra var þá orðin ein á báti, og var komin í þrot með, að sameina þjóðina að baki sér.  En þá gerðust óvæntir atburðir.

Atburðir sem öllu breyttu.

En er einhver eðlismunur á hugmyndafræði harðlínu-Síonista í Ísrael og nasistastjórn Hitlers?

Öllum að óvörum rigndi eldflaugum með þungum og öflugum sprengjum yfir Ísrael.

Hvernig komust stórar eldflaugar í þúsunda vís fram hjá öflugustu landamæragæslu í heimi?

Og það sem meira var. Af hverju steinsváfu þrautþjálfaðar gæslusveitir landamæra Ísraels og Gasa?

Það tók þær þrjá tíma að vakna eftir að morðsveitir Hamas ruddust inn í landið og náðu að komast í nálæg þorp til að myrða saklaust fólk, konur og börn, og komast til baka með marga gísla.

Þessir þrír tímar nægðu til þess, að Netanjahú tókst um sinn, að sameina þjóðina að baki sér.

Sameinuðu þjóðirnar.

Ísraelar hafa margsannað að þeir eru og vilja vera lýðræðisríki.  Því á að leysa úr máli þessara tveggja þjóða á vettvangi gagnkvæmnar virðingar og tillitsemi til ólíkra sjónarmiða,.

Sá vettvangur á að vera Sameinuðu þjóðirnar:  Þegar Ísraelar sóttu um aðild að Sameinuðu þjóðunum 1949 lögðu þeir fram þau rök, að niðurstaða í landamæradeilum þeirra Við Palestínumenn ætti ekki að vera skilyrði fyrir fullri aðild þeirra að Sameinuðu þjóðunum.

Þær deilur á að leysa við samningaborð, með leiðsögn Sameinuðu þjóðanna. Sögðu þeir þá.

Þessi öflugu rök færðu Ísraelar sjálfir fram fyrir umsókn sinni þá, og þau eru jafn öflug nú í dag.

Með þessum rökum Ísraelsmanna sjálfra ættu Sameinuðu þjóðirnar, að taka Palestínu án tafa inn í  þjóðabandalag sitt, og flytja þannig deilur þessara þjóða á öflugan og áhrifamikinn vettvang alþjóðasamfélags Sameinuðu þjóðanna. Fyrsta skrefið yrði þá líklega vopnahlé.

Næsta skrefið mætti vera, að Ísrael og önnur ríki taki Alþingi Íslendinga sér til fyrirmyndar, og viðurkenni  Palestínu sem fullvalda og sjálfstætt ríki með sama þjóðarrétti og Ísrael.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: