Stjórnmál:
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Frá myndun núverandi ríkisstjórnar hafa Sjálfstæðisflokkurinn og raunar Miðflokkurinn einnig lagt Flokk fólksins í einelti. Leikáætlunin virðist einföld: að endurtaka sífellt að samheldin ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sé á fallanda fæti vegna þess að ráðherrarnir togist á eða að Flokkur fólksins eigi að víkja vegna reynsluleysis og meints skorts á mannasiðum.
Ég segi bara: Kasti sá fyrst steininum sem syndlaus er.
Sjálfstæðisflokkurinn
er orðinn skuggi
af sjálfum sér.
Hræsnin birtist skýrt í því að Sjálfstæðisflokkurinn, sem kjósendur höfnuðu með afgerandi hætti í síðustu kosningum, sat við völd árum saman án þess að detta nokkru sinni í hug að víkja vegna eigin hneykslismála. Í grein minni Handarbakssmiðurinn snýr aftur rakti ég aðeins níu mál sem flokkurinn taldi aldrei ástæðu til að axla pólitíska ábyrgð fyrir: Panamaskjölin, uppreist æru-málið, Íslandsbankasöluna, ritstjóramál Þorvaldar Gylfasonar, Ásmundarsalar- og grímumálið, Namibíumál Samherja, BNT/N1-málið, Sjóð 9 og Lindarhvollsmálið.
Þetta er raunar aðeins brot af sögunni. Ég sleppi meira að segja að rifja upp hvernig flokkurinn leiddi þjóðina inn í stærsta efnahagshrun Íslandssögunnar ef ekki heimssögunnar ef lítum bara til fjármálamarkaða. Listinn er langur, en aldrei taldi Sjálfstæðisflokkurinn að eigin mistök væru tilefni til að yfirgefa sviðið.
Þess vegna er það orðið hálfgerður gamanleikur þegar formaður Sjálfstæðisflokksins og fylgdarlið hennar krefjast þess að ríkisstjórnin fari frá eða að Flokkur fólksins verði rekinn úr samstarfinu. Í hvert sinn sem kröfurnar heyrast fæ ég næstum magakrampa af hlátri.
Nýjasta dæmið er svo viðskipta- og utanríkisstefna flokksins. Hún gufaði upp á augabragði þegar utanríkisráðherra Bandaríkjanna lét hafa eftir sér að tími fríverslunarsamninga væri liðinn. Fram að því höfðu forystumenn flokksins fullyrt við hvert tækifæri að fríverslunarsamningur við Bandaríkin væri bæði auðveldur og handan við hornið. Sá brandari entist skemur en nýliðinn sólmyrkvi.
Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn skuggi af sjálfum sér og það er ekki að fara að breytast. Og í hvert sinn sem hann reynir að stíga upp í pontu sem siðferðisvörður þjóðarinnar minnir það helst á leikrit eftir Dario Fo: hávær farsi þar sem aðalsöguhetjan virðist eina manneskjan í salnum sem áttar sig ekki á að áhorfendur eru löngu byrjaðir að hlæja.