„Mikill kurr er meðal þingmanna flokksins vegna málsins og lét einn þingmaður þau orð falla í samtali við blaðið, að „oft hefði verið haldinn þingflokksfundur af minna tilefni.“
Mogginn.
„Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins verður kallaður saman til fundar fyrir helgi, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, og verður hvalveiðibannið umfjöllunarefni fundarins.“
Þetta segir í Moggafrétt í dag. Svo kemur þetta:
„Fundurinn hefur þó ekki verið formlega boðaður enn.“
Næst er þetta: „Mikill kurr er meðal þingmanna flokksins vegna málsins og lét einn þingmaður þau orð falla í samtali við blaðið, að „oft hefði verið haldinn þingflokksfundur af minna tilefni.“
Framsókn slakar á
Mogginn talaði líka við Framsókn:
„Við erum ekki komin svo langt í þessu, þetta kom nú bara upp í gær,“ sagði Ingibjörg Isaksen, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, í samtali við Morgunblaðið, spurð um hvort hún hygðist boða þingflokk Framsóknar til fundar vegna hvalveiðibannsins.
„Við erum í þéttu samtali, þingmenn Framsóknarflokksins, eins og við erum alltaf,“ segir Ingibjörg og bætir því við að málið verði rætt í atvinnuveganefnd Alþingis þar sem þingmaður Framsóknarflokksins gegnir formennsku.
„Við metum stöðuna eftir það, geri ég ráð fyrir,“ sagði hún.