- Advertisement -

Íslenska lífeyriskerfið sker sig úr

- eina landið þar sem lífeyrir Tryggingastofnunar fellur niður.

Hrafn Magníusson.

Hrafn Magnússon skrifar á Facebook: Í nýlegri skýrslu um fjölþjóðlega rannsókn á vegum OECD kemur fram að íslenska lífeyriskerfið sker sig úr með mikilli tekjutengingu lífeyris úr almannatryggingum, jafnframt er Ísland eina landið þar sem lífeyrir frá Tryggingastofnun fellur niður.

Almannatryggingar er að vissu marki kjarasamningur eldri borgara við ríkisvaldið. Gallinn er bara sá að eldri borgarar hafa enga samningstöðu líkt og verkalýðshreyfingin. Eldri borgarar hafa heldur ekki ótakmarkaðan tíma til að vinna með stjórnvöldum að leiðréttingum á vitlausu lífeyriskerfi.

Til að vinna að sátt við samtök eldri borgara þurfa stjórnvöld því að bretta upp ermarnar svo við Íslendingar þurfum ekki að búa áfram við lífeyriskerfi sem á sér engan líka með alltof miklum tekjutengingum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: