- Advertisement -

Jöfnunaráhrif skattkerfis minni hér

Minnu munar á dagvinnulaunum á Íslandi og annars staðar á Norðurlöndum meðal tekjuhærri hópa. Dagvinnulaun stjórnenda á Íslandi í raun 5% hærri en að meðaltali á hinum Norðurlöndunum. Mestur munur á dagvinnulaunum er gagnvart verkafólki og þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólki.

Á heimasíðu Eflingar má sjá samantekt á skýrslu ASÍ um dagvinnulaun á Norðurlöndum. Munurinn á dagvinnulaunum á Íslandi og hinum Norðurlöndunum er mun minni meðal tekjuhærri hópanna en hjá tekjulægri hópunum. Þetta kemur fram í úttekt ASÍ um regluleg dagvinnulaun á almennum vinnumarkaði á Norðurlöndunum fyrir árið 2013. Í úttektinni var skoðaður launamunur á Norðurlöndunum eftir einstaka starfsstéttum að teknu tilliti til skattkerfis áhrifa og verðlags.

Þannig eru dagvinnulaun stjórnenda á Íslandi í raun 5% hærri en að meðaltali á hinum Norðurlöndunum. Hluta af þessum mun má skýra með minni tekjujöfnunaráhrifum íslenska skattkerfisins, þar sem hátekjur hér á landi eru skattlagðar mun minna en á hinum Norðurlöndunum og því verður hlutfallslega meira eftir í buddu hátekjuhópa hér á landi.

Mestur munur á dagvinnulaunum er gagnvart verkafólki og þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólki.  Hér á landi eru dagvinnulaun verkafólks allt að 30% lægri en að meðaltali á hinum Norðurlöndunum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ítarlegri upplýsingar frá ASÍ má nálgast hér.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: