- Advertisement -

„Kanasleikjur“ í Hádegismóum

Stjórnmál:

Sigurjón Magnús Egilsson skrifar:

„Síðan hefur Þorgerður hvað eftir annað fundið tilefni til að senda Trump-stjórninni tóninn. Hún hefur gert meira úr yfirlýsingum forsetans um Grænland en efni standa til og látið eins og fullveldi Íslands standi ógn af, sem er fjarri lagi.

Samhliða gaf ráðherrann til kynna að hviklyndi í Hvíta húsinu væri sérstök röksemd fyrir því að Ísland leitaði skjóls í Evrópusambandinu, þótt það virðist raunar eiga miklu meira en nóg með sig og sín vandamál.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þetta er brotabrot úr leiðara Moggans í dag.

„Jafnvel þótt það væri rétt athugað þá er ályktunin röng. Hér ræðir um samband ríkja, ekki einstaka forseta vestra eða einstaka ráðherra hér. Persónulegar skoðanir íslenskra ráðherra á mannkostum forsetans eiga þar engu um að ráða. Því ráðamenn koma og fara, en hagsmunir ríkja eru varanlegir.

Hagsmunir Íslands af góðu sambandi vestur um haf eru augljósir. Bandaríkin eru enn voldugasta ríki heims; eina ríkið sem raunhæft getur ábyrgst varnir Íslands,“ segir þar einnig.

Mogginn tiplar á tánum um ófremdarástandið í bandarískum stjórnmálum. Ekki bara að Donald Trump er herskár forseti heldur og er hann til alls vís, óútreiknanlegur með öllu. Ekki síst hver framkoma hans er við önnur ríki – frá degi til dags.

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna,  er að sjálfsögðu velkominn til Íslands. Ekki má gleyma hvaðan hann kemur. Hann er hluti af mestu pólitísku hringekju samtímans. Kaninn er ekki hér af góðmennsku. Telur sig hafa hag af því.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: