- Advertisement -

Karlmenn í meirihluta fatlaðra

Fötluðum sem fengu þjónustu frá sveitarfélögunum fjölgaði um 523, eða 12,3%, á árinu 2013 frá árinu á undan. Um 40% þeirra eru yngri en 17 ára. Drengir eru í miklum meirihluta í yngsta aldurshópnum, eða um 73%.

Á vef Hagstofu Íslands kemur fram að á árinu 2013 hafi 4.783 einstaklingar með fötlun fengið þjónustu frá sveitarfélögunum á 15 þjónustusvæðum og hafði þeim fjölgað um 523 (12,3%) frá árinu áður. Af þeim voru 1.910 börn 17 ára og yngri (39,9%). Drengir og karlar voru fleiri en stúlkur og konur í heildar hópnum eða tæp 62%, enda voru þeir í miklum meirihluta í yngsta aldurshópnum (tæp 73%). Í aldurshópnum 18–39 ára voru karlar rúmt 61%, en í aldurshópnum 67 ára og eldri voru konur mun fleiri eða 67%.

Þjónustuþegar voru 1,5% landsmanna, 2,4% barna og 0,7% fólks 67 ára og eldra. Í desember árið 2013 voru 23% þessara einstaklinga í sérstökum búsetuúrræðum, en 43% bjuggu hjá foreldrum. Af 18 ára og eldri voru tæp 36% í sérstökum búsetuúrræðum.

Árið 2013 höfðu samningar um þjónustu og/eða einstaklingsbundnar áætlanir verið gerðar við 841 (17,6%) einstakling með fötlun. Þar af voru samningar um þjónustu við 613 (12,8%) og einstaklingsbundnar þjónustuáætlanir við 384 (8,0%). Hafði þeim sem höfðu slíka samninga eða áætlanir fjölgað um nær helming frá árinu á undan.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þegar litið er til fjölda þjónustuþátta og magn þjónustu sem fólk með fötlun 18 ára og eldra fékk árið 2013 kemur fram að 2.015 (70,2%) fengu einn þjónustuþátt eða fleiri. Með þrjá þjónustuþætti eða fleiri voru 389 (29,6%) árið 2013.

Sjá: Þjónusta sveitarfélaga við fatlað fólk 2013 – Hagtíðindi

 

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: