- Advertisement -

Landsvirkjun skattleggur þjóðina

„Við eigum að hafa raforkuna á framleiðsluverði og ekki krónu umfram það.

„Landsvirkjun er í eigu ríkisins þannig að tekjur hennar umfram rekstrarkostnað eru einfaldlega óbein skattlagning. Raforka sem er seld til málmbræðslna í eigu erlendra fyrirtækja er verðlögð samkvæmt samningum til margra ára þannig að ekki er líklegt að þær gjaldi í bráð þessa aukna f járþorsta Landsvirkjunar,“ skrifar Kári Stefánsson í fínni grein sem er að finna í Fréttablaðinu í dag. Þar finnur hann að áformum Landsvirkjunar.

„Landsvirkjun er ekki sjálfstætt fyrirtæki heldur eign þjóðar innar. Hagsmunir þjóðarinnar eiga að ráða og það er ekkert afstætt við það,“ skrifar Kári. „Við eigum að hafa raforkuna á framleiðsluverði og ekki krónu umfram það til þess að lækka kostnað heimilanna og hlúa að fjölbreytni í íslensku atvinnulífi.

Í langri grein sinni skrifar Kári um afstöðu sína gagnvart þriðja orkupakkanum:

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Þegar maður veltir fyrir sér orkupakkanum þriðja í tengslum við hugmyndir um það hvernig orkan sem við virkjum úr íslenskri náttúru sé nýtt og mikilvægi hennar fyrir framtíð þjóðarinnar, þá held ég að við ættum láta hann vera þótt ekki sé nema vegna þeirra skilaboða sem samþykkt hans myndi senda börnum okkar og barnabörnum. En ef Alþingi samþykkir orkupakkann þriðja held ég að við lifum það svo sem af vegna þess að við erum öll, 350 þúsund, orðin atvinnumenn og konur í því að takast á við þau bjánasköp kjörinna fulltrúa þjóðarinnar sem þeir fremja gjarnan í nágrenni Austurvallar, þau afdrifaríku inni í hlöðnu steinhúsi sem blasir við Jóni Sigurðssyni, þau sem eru næstum takmarkalaust eymdarleg í depurð sinni í öðrum húsum þar í nágrenninu.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: